jump to navigation

loksins loksins 20 október 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
1 comment so far

Jæja ég held nú að það sé löngu kominn tími á nýtt blogg.

Það sem er að frétta af mér er að ég er byrjuð í HSSK, Hjálparsveit Skáta í Kópavogi, ég er bara nýbyrjuð og er því nýliði, er búinn að fara á eitt stykki rötunar námskeið þar sem lært var á áttavita og kort og núna um helgina var ég á Fyrstuhjálp 1, það var rosa mikið fjör þar fórum á 2 æfingar, á fyrri æfingunni voru fullir jólasveinar sem duttu niður af þaki og fótbrotnuðu, og á seinni æfingunni var bílslys þar sem 6 voru slasaðir.
Þetta var nú rosa mikið fjör nema hvað að dýnurnar á Úlfljótsvatni eru hreinn viðbjóður. Þetta var bara eins og að sofa á gólfinu :( . Hann Emil var með mér á þessu námseiði og var kallin bara hæstur í prófinu :) ég fékk 7,4 hehe gerði nokkrar klaufa villur, :)

Jæja en ég er bara í skólanum að læra og læra það gengur bara ágætlega, ég var að velja fyrir næstu önn, vonandi næ ég öllu núna þá ætti ég að útskrifast í félagsfræði, því ég þarf að taka svo mikið í efnafræði og eðlisfræði og svoleiðis svo ég komist í Jarðfræði einn daginn.

Jæja ég hef ekki meyra að segja núna heyrumst

já og ég var að setja inn myndir í myndirnar mínar frá sumrinu

og litla mús heitir????????? 24 maí 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
3 comments

Jæja jæja jæja
Þá er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Ég tók prófin og ég var svo stressuð að ég vissi bera ekki hvert ég væri að fara. En ég bara náði barasta öllu samann og er þá planið bara að ná öllu næst og útskrifast næstu jól . Ég svo massaði stærðfræðina og fékk ég 7 og þakka ég honum Emil fyrir það hehehe. hann var auka kennarinn minn.

svo er vinnan byrjuð á fullu og er það bara fínt þar sem ég á ekki mikinn pening.
En í dag var merkis viðburður hún Minni Mús var skýrð í dag og heitir hún Gunnhildur María Baldursdóttir og er það eftir báðum ömmunum og eru allir í skýjunum. En það var nú frekar fyndið hvað skeði áður en ég fór í kirkjuna. Ég fór með sultukrukkur í salinn sem veislan var haldinn og var að segja þær á borðið og þá sé ég þessa sætu mynd af Minni mús og er að skoða hana og svo fatta ég að þarna er nafnið og ég blóta svo mikið hehehe. ég vissi þá nafnið áður en ég fór í sjálfa skírnina hehehe. ég ræddi við hann Baldur minn og skammaði hann fyrir að láta mig ekki vita af þessu heheheh.

Svo var farið og hakkað í sig kræsingar og leikið við Þórunni Emilíu stóru systur.
Svo er náttúrulegar bara svaka talning í gangi hjá mér því ég er að fara til Emils eftir 9 daga í dag hehehe og er ég alveg að deyja hérna mig hlakkar svo til 

Til Hamingju Gunnhildur María Baldursdóttir

P.S var að byrja að horfa á Eurovision og mér finnst sænska kellan vera svo lík geimverunum í South park hehehe og hérna er mynd til að sanna það hehehe

sagði það hehehehhehe

próf og pirringur 25 apríl 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
1 comment so far

Jahá það er mikið búið að vara í gangi í þjóðfélaginu og hef ég ekki verið að fylgjast mikið með þar nema þegar vörubílstjórar voru að mótmæla og allt fór í háaloft. En svo fékk ég alveg sjokk þegar ég var að hlusta á fréttirnar á bylgjunni á miðvikudaginn þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni.
Þá var verið að tala við stelpu sem var svona 13 eða 14 ára og hún var að kasta eggjum og svo spurði fréttamaðurinn
>afhverju ertu að kasta eggjum í lögregluna
þá sagði stelpan
>æ bara. Það var bara kassi fullur af eggjum hérna og við byrjuðum bara að kasta, bara til að skapa stemmingu eða eitthvað!!!!

Alltaf gott að skapa stemmingu með því að kasta eggjum í lögguna. Ég var svona nett pirruð á þessu því ég hata svona gelgju stæla. Og svo var hún líka spurð hvort hún væri ekki hrædd við að ver handtekin og þá kom bara stórt NEI.
Ég var alveg stein hissa á þessum kjánaskap í þessum krökkum þau voru ekki að mótmæla bara að skapa stemmingu.

En annars er bara allt að gerast hérna hjá mér. Er núna á fullu að reyna að læra því prófin eru að nálgast. Mitt fyrsta próf er í stærðfræði og er 3 maí held ég og svo koma hin seinna. Er strax orðinn stressuð og líkar það ekki vel.
En ætla að halda áfram að læra, er búinn að koma þessu frá mér hvað mér fannst þetta fáránlegt hjá þessum krökkum.

búinn að fara í klippingu 16 apríl 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
3 comments




fleiri myndir á http://picasaweb.google.com/kobbi5ster/Klipping

klipping á morgunn 15 apríl 2008

Posted by sigurveig in Blogroll, Uncategorized.
1 comment so far

jæja þá er ég að fara breyta pínu til á kollinum á mér :) ég var að panta klippingu hjá henni Erlu frænku minni og ætla ég að breyta pínu til. kominn tími til.

var að setja inn nokkrar nýjar myndir í möppuna MYNDIRNAR MÍNAR þegar ég fór á árshátíð hjá Parlogis og smá úr bústaðnum sem við familían fórum í.

núna eru bara próf og verkefni framundan enda bara 2 vikur eftir af skólanum þannig að það fer að skella á lokapróf :( ekki alveg í uppáhaldi hjá mér.

hef þetta bara stutt núna bæjó spæjó

flakkari um páskana 3 apríl 2008

Posted by sigurveig in Ísland, Blogroll, Ferðalög.
add a comment

Buenos dias
Hann Emil minn er rokinn aftur til Stokkhólms að læra á fullu eftir tveggja vikna hlé. Hann kom til mín 14 mars og var það nú bara algjört æði :) .
Ég hélt smá afmælisteiti daginn eftir að hann kom þar sem ég var nú 22 ára gömul. Já svo má ekki gleyma að ég tók mér frí frá vinnunni á meðan páskafríði var í skólanum og hef ég nú bara aldrei gert það áður. Í þessu fríi fórum við Emil á Þorvaldseyri ( sveitabær undir Eyjafjöllum) og gistum þar eina nótt því stefnan var tekinn á Eyjafjallajökul. Þetta var alveg frábær ferð við komumst reyndar ekki alveg upp vegna þessa að snjórinn var svo leiðinlegur og svo var stórt ský yfir toppnum. En á leiðinni niður fóru öll ský af himninum sem var frekar fúlt en þessi fer var samt geggjuð. Við Emil brunuðum á Vík og fengum okkur einn góðan subbuborgara og brunuðum svo í bæinn.

Fór svo í bláa lónið um daginn og viti menn vörubílarnir voru að byrja að mótmæla og var það mjög gott en ég nennti bara ekki að bíða í röð á eftir þeim. Þannig að ég Emil og Yarisinn þutum í gegnum krókaleiðir í hafnarfirðinum og kópavoginum og rétt sluppum fram fyrir vörubílana og vorum síðasti bíll sem komst fyrir framan þá hehe. Þannig á leiðinni í bláa lónið var bara róleg heit hehe.
Já og það var ótrúlega gott að skella sér í lónið. Þarna var stappað af útlendingum og mikið af stórum mjög stórum köllum frá Danmörku hehe með mjög mjóar konur þetta var frekar fyndið. Þetta var alveg heill her.

Svo var árshátíð hjá Parlogis síðasta laugardag og var það mjög gaman. Ég fór í greiðslu hjá Erlu frænku og kom það mjög vel út :) . Svo var skundað á hótel Selfoss þar sem við gistum eina nótt. Við fengum ótrúlega góðan mat og var ég svo södd að ég gat bara ekki dansað hehehe. við trölluðum eitthvað fram á nótt en svo var ég svo þreytt að við fórum að sofa ég helt að klukkan var orðinn 4 eða eitthvað en hún var nú bara 2.

Svo fór hann Emil á mánudaginn kl 7:50 og var ég ekkert sérstaklega kát. En það er allt í gúddí ég er að fara til hans 3 júní og verð í 2 vikur.

En ég verð að fara halda áfram að taka eftir í tíma. Er í sögu núna :) já og það tók mig 30 mín að komast í skólann áðan í staðin fyrir 10 mínotur :)

Adios amigos.

Páskar 23 mars 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
1 comment so far

Gleðilega páska allir samann.

þetta verður stutt í dag, ætla að hafa aðeins lengri færslu næst. Emil er kominn og við fórum á föstudaginn á Eyjafjallajökull.

bæjó

12 mars 12 mars 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
4 comments

Og það var lítil stúlka 3 mars 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
5 comments

Vil bara bjóða hana litlu frænku mína velkomna í heiminn hún fæddist í gær 2 mars og minnir nú að hún hafi komið í heiminn 23:20.

Til hamingju Baldur og Lonni

Tónleikar 26 febrúar 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
3 comments

Hólí mólí ég og Emil erum að fara á geggjaða tónleika í sumar!!
Við vorum að kaupa miða á útitónleika í Stokkhólmi og þar koma fram Foo Fighters og svo voru að bætast við Queens of the stone age og ég get svo svarið það ég er að deyja úr spenningi enda er Foo Fighters uppáhalds hljómsveitinn mín og er ég að fara á þá í 3 sinn :) :):):) og annað sinn á QOTSA
Svo eru The Hives líka að spila þarna og fullt í viðbót. Get ekki veðið vúhú.
Hérna er slóðinn á þennan atburð
http://wtai.se/

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.