jump to navigation

Sumarblogg 2007 31 ágúst 2007

Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.
4 comments

Jæja jæja þá held ég að það sé kominn tími á eitt stykki blogg,

Ég er búinn að vera að ferðast og vinna í allt sumar og ætla að taka til hvað ég var að gera.

Ég kom fór til Mallorca 4 júní og var í 2 vikur þarna í frábæru veðri. Það var sól mest allan tíman og auðvitað mössuðum við Unnur tanið á sundlaugar bakkanum.

Þegar ég kom heim fór ég beint að vinna því ég eyddi alveg slatta mikið af pening þarna úti :/
En ég var nú ekki bara að vinna í sumar því ég fór allar helgar nema þrjár í ferðalög.

Fyrsta helgin eftir Mallorca var farið í Þjórsárdal: þar var trallað í tjaldi og var frekar gaman verð ég að segja. Gist í tjaldi og farið í gott grill og massa sund :

Svo voru tónleikar 26/6 með The Raptures og var það ótrúlega gaman þar sem ég hef verið að hlusta svolítið mikið á hana. Þarna voru allir treflar landsins mætti á einn stað til að vera menningarleg heehehe. En ég og Emil vorum í góðum gír á Nasa það kvöldið

Helgina eftir eða nánar tiltekið 29/6 var helginn tekin með trompi. Við Emil brunuðum strax eftir vinnu á föstudegi í veiðivötn. Við vorum komin þangað kl 9 fundum mömmu og pabba sem voru við Litlasjó og fórum að veiða. Emil veiddi nú 2 eða 3 fiska og ég annað eins, en mínir voru allir svo pínu litlir hehehe. Um kvöldið var skellt í sig grilluðu lambakjöti og með því. Ummm það var mjög gott
Laugardag var svo farið í massífa ferð, við fórum fyrst í Landmannalaugar sem var frábæst því það er svo fallegt það og svo var brunað fjallabak niðri þar var skoðað allt sem hægt var að skoða, t.d. Ófærufoss í Eldgjá sem var nokkuð flottur og svo enduðum við á Kirkjubæjarklaustri.
Sunndagur: fórum upp á Systrastapa, viðbjóður einn verð ég að segja (mjög erfitt), svo brunuðum við á Vík og skoðuðum allt það í kring fórum í fjörunna og kíktum á Dyrhólaey.

7-8 júlí, fór í partí og í mótorhjólaferð á Þingvelli sem var mjög gaman.

14 júlí var fjölskilduhátíð hjá Þingvöllum. Ég fékk hana Þóruni Emilíu lánaða og við fórum í hoppukastalann sem var ótrúlega gaman hehehe.
Á sunnudeginum fórum við Emil gullna hringinn. Skelltum okkur á Gullfoss og Geysir og vorum algjörir túristar.

19 júlí, Sænskur vinur hans Emils kom í til landsins og ég ákvað að fara með þeim í ferðalag enda finnst mér ekkert skemmtilegra.
Fimmtudagur: fórum á Geysi og þaðan var brunað á Kjöl. Við skunduðum beint upp í Kerlingarfjöll þar sem ég hef aldei komið áður. Keyrðum þar um og skoðuðum hveri, sumum fannst ekki nóg að skoða heitu uppspretturnar og skellu sér í smá bað. Eftir smá sull var skundað áfram í átt að Hveravöllum. Þar var tjaldað fengið sér bjór og skellt sér í náttúrulega pottin sem var þarna. Þetta var algjört æði vildi að ég væri með svona pott á svölunum !.
Föstudagur: ferðin var rétt að byrja. Við fórum á Akureyri og fengum okkur að borða og brunuðum svo á Mývatn þar sem við skoðuðum gamla gíga, Dimmuborgir (mjög flott) sprungur fullar af heitu vatni. Kíktum á Dettifoss sem var magnaður verð ég að segja. Svo var brunað í einum rykk í Ásbyrgi.
Laugardagur: fórum á Húsavík þar fengum við okkur síld, súpu og brauð með osti og skinku, en einnig skelltum við okkur á reðursafnið sem er þar í bæ, frekar skrautlegt lið það. Brunað á Mývatn farið í lónið þar( ekkert spes). Skundað á Akureyri og farið á djammið.
Sunnudagur: keyrt heim ekkert skoðaða á leiðinni.

27/7 fórum á strandir. Nánar tekið Gjögur á vestfjörðum
Fórum í flug, sund í sundlaug sem er í fjörunni og höfðum það mjög gott og hlunnindin voru mikil !!!

3/8-5/8 versló, vorum á föstudegi í sumarbústaðnum hennar ömmu. Laugardagur: fórum í Þórsmörk mjög gaman, sprungið dekk á og varðeldur. Svo var farið í veiðivötn og þar sem ekkert var veitt en samt var mjög gaman.

18/8 Mennigarnótt: fórum í bæinn um þrjú leitið og vorum að vappa um og horfa á tónleika, aðalega á Dillon fórum úr bænum þegar flugeldasýningin var búinn, mjög góður dagur

Og síðastliðna helgi leigði ég sumarbústað og vorum við Emil í honum alla helgina, það komu fullt af gestum á laugardeginum og var heljarinnar pottapartý.

Þetta er allt sumarið mitt veit að þetta er langt en vonandi hafið þið skemmt ykkur.