Sumarblogg 2007 31 ágúst 2007
Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.trackback
Jæja jæja þá held ég að það sé kominn tími á eitt stykki blogg,
Ég er búinn að vera að ferðast og vinna í allt sumar og ætla að taka til hvað ég var að gera.
Ég kom fór til Mallorca 4 júní og var í 2 vikur þarna í frábæru veðri. Það var sól mest allan tíman og auðvitað mössuðum við Unnur tanið á sundlaugar bakkanum.
Þegar ég kom heim fór ég beint að vinna því ég eyddi alveg slatta mikið af pening þarna úti :/
En ég var nú ekki bara að vinna í sumar því ég fór allar helgar nema þrjár í ferðalög.
Fyrsta helgin eftir Mallorca var farið í Þjórsárdal: þar var trallað í tjaldi og var frekar gaman verð ég að segja. Gist í tjaldi og farið í gott grill og massa sund :
Svo voru tónleikar 26/6 með The Raptures og var það ótrúlega gaman þar sem ég hef verið að hlusta svolítið mikið á hana. Þarna voru allir treflar landsins mætti á einn stað til að vera menningarleg heehehe. En ég og Emil vorum í góðum gír á Nasa það kvöldið
Helgina eftir eða nánar tiltekið 29/6 var helginn tekin með trompi. Við Emil brunuðum strax eftir vinnu á föstudegi í veiðivötn. Við vorum komin þangað kl 9 fundum mömmu og pabba sem voru við Litlasjó og fórum að veiða. Emil veiddi nú 2 eða 3 fiska og ég annað eins, en mínir voru allir svo pínu litlir hehehe. Um kvöldið var skellt í sig grilluðu lambakjöti og með því. Ummm það var mjög gott
Laugardag var svo farið í massífa ferð, við fórum fyrst í Landmannalaugar sem var frábæst því það er svo fallegt það og svo var brunað fjallabak niðri þar var skoðað allt sem hægt var að skoða, t.d. Ófærufoss í Eldgjá sem var nokkuð flottur og svo enduðum við á Kirkjubæjarklaustri.
Sunndagur: fórum upp á Systrastapa, viðbjóður einn verð ég að segja (mjög erfitt), svo brunuðum við á Vík og skoðuðum allt það í kring fórum í fjörunna og kíktum á Dyrhólaey.
7-8 júlí, fór í partí og í mótorhjólaferð á Þingvelli sem var mjög gaman.
14 júlí var fjölskilduhátíð hjá Þingvöllum. Ég fékk hana Þóruni Emilíu lánaða og við fórum í hoppukastalann sem var ótrúlega gaman hehehe.
Á sunnudeginum fórum við Emil gullna hringinn. Skelltum okkur á Gullfoss og Geysir og vorum algjörir túristar.
19 júlí, Sænskur vinur hans Emils kom í til landsins og ég ákvað að fara með þeim í ferðalag enda finnst mér ekkert skemmtilegra.
Fimmtudagur: fórum á Geysi og þaðan var brunað á Kjöl. Við skunduðum beint upp í Kerlingarfjöll þar sem ég hef aldei komið áður. Keyrðum þar um og skoðuðum hveri, sumum fannst ekki nóg að skoða heitu uppspretturnar og skellu sér í smá bað. Eftir smá sull var skundað áfram í átt að Hveravöllum. Þar var tjaldað fengið sér bjór og skellt sér í náttúrulega pottin sem var þarna. Þetta var algjört æði vildi að ég væri með svona pott á svölunum !.
Föstudagur: ferðin var rétt að byrja. Við fórum á Akureyri og fengum okkur að borða og brunuðum svo á Mývatn þar sem við skoðuðum gamla gíga, Dimmuborgir (mjög flott) sprungur fullar af heitu vatni. Kíktum á Dettifoss sem var magnaður verð ég að segja. Svo var brunað í einum rykk í Ásbyrgi.
Laugardagur: fórum á Húsavík þar fengum við okkur síld, súpu og brauð með osti og skinku, en einnig skelltum við okkur á reðursafnið sem er þar í bæ, frekar skrautlegt lið það. Brunað á Mývatn farið í lónið þar( ekkert spes). Skundað á Akureyri og farið á djammið.
Sunnudagur: keyrt heim ekkert skoðaða á leiðinni.
27/7 fórum á strandir. Nánar tekið Gjögur á vestfjörðum
Fórum í flug, sund í sundlaug sem er í fjörunni og höfðum það mjög gott og hlunnindin voru mikil !!!
3/8-5/8 versló, vorum á föstudegi í sumarbústaðnum hennar ömmu. Laugardagur: fórum í Þórsmörk mjög gaman, sprungið dekk á og varðeldur. Svo var farið í veiðivötn og þar sem ekkert var veitt en samt var mjög gaman.
18/8 Mennigarnótt: fórum í bæinn um þrjú leitið og vorum að vappa um og horfa á tónleika, aðalega á Dillon fórum úr bænum þegar flugeldasýningin var búinn, mjög góður dagur
Og síðastliðna helgi leigði ég sumarbústað og vorum við Emil í honum alla helgina, það komu fullt af gestum á laugardeginum og var heljarinnar pottapartý.
Þetta er allt sumarið mitt veit að þetta er langt en vonandi hafið þið skemmt ykkur.
Svakalega flott blogg hjá þér Helga mín!! Gaman að lesa hvað þið voruð að bralla í sumar
Greinilega hörku fjör hjá ykkur 
Mér líst bara mjög vel á þessa síðu og nú ætla ég að fara að bæta henni inn á mína hehe
Later – Sissa
sæl elskan, bara mega blogg hjá minni.
já það hefur verið bara brjálað að gera hjá minni í sumar!
ég heyri í þér elskan
kv.Unna
Jæja, loksins kom blogg Helga! En hey, gaman að lesa þetta, greinilega búið að vera frábært sumar hjá þér
Áttu ekki að vera i tíma…..