Nakið fólk 24 september 2007
Posted by sigurveig in Uncategorized.3 comments
Jæja þá er nakta fólkið aftur farið á stjá. Já ég skrapp út í búð áðan og það var bara nokkuð gott þar sem ég var frekar svöng. En þegar ég kem heim og er að labba upp stigann til að komast heim til mín lít ég aftur fyrir mig, veit ekki af hverju en ég gerði það samt. það sem við mér blasti var ekki falleg, þarna í íbúðinni á móti var 1 verulega nakinn kona og 1 stikki hálfnakinn kall.
Ég hló alveg ótrúlega mikið því þetta er svo fáránlegt. Ég fór inn til mín og fór inn í herbergið mitt því ég ætlaði í tölvuna. En nei nei ég var víst búinn að draga frá inni hjá mér áður en ég fór út og um leið og ég kem inn þá blasir þessi sjón aftur við mér. En þá er 1 önnur kona búinn að bætast í hópinn heheh. Ég get svo svarið það þetta fólk er verulega klikk. Allir bara í gúddí fíling inní eldhúsi alsberir að kela. Já þar sem ég hef ekki mikinn áhuga á að horfa á þetta dró ég fyrir allt sem hægt var að draga fyrir.
Ég held að ég þurfir að senda þessu fólki bréf og vinsamlega biðja þau um að kaupa sér gardínur í eldhúsið hjá sér. Ehhehe. Þetta var semsagt morguninn hjá mér.
En um helgina var alsherja tiltektar æði hérna heima. Ég tók til í báðum herbergjunum og stóð mig með prýði. Ég og mamma fórum meyra að segja í IKEA að skoða okkur um og þar fékk ég fullt af kössum til að hafa smá skipulag á draslinu mínu.
Réttir 16 september 2007
Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.3 comments
Jæja þá er maður búinn í réttunum og þar var ótrúlega gaman. Rollur og fólk útum allt.
Ég byrjaði á því að vakna kl 7 á föstudaginn og var kominn í breiðás um 9 mega fjör á leiðinni, Anna Björk, Jóhanna og vinkonur hennar fengu far hjá mér frá selfossi upp í sveit.
En réttirnar voru frábærar þarna mættu fullt af fólki og var alveg pakkað af rollum í smá tíma hhehe, ég sjálf náði 4 sem er alveg ágætt, var ekkert að massa mig í þessu hehehe. Enda voru þessar rollur alltaf að stanga mann í lærin. Er öll í marblettum eftir litlu gómsætu krúttin hehehe.
En svo eftir réttir var skundað í Breiðás og fengið sér ótrúlega góða réttarsúpu, hún er alltaf svo ótrúlega góð hjá ömmu að ég gat ekki hætt að borða hana heheh.
Þá var bara eitt eftir. Það var að skella sér á réttarball.
Ég fór í Árnes þar sem ballið var og við frænkurnar vorum strax komnar í fílinginn.
Það var ótrúlega gaman þarna, reyndar var ótrúlega mikið um slagsmál að ég var alveg að vera brjáluð, það voru alltaf 2 stelpur að slást þarna og skil ekki af hverju þeim var ekki hent út. En fyrir utan slagsmál var ég bara í mjög góðum fíling allt kvöldið.
Ég ætlaði að fara í skeiðaréttir og vaknaði ég kl 9 svo ógeðslega þunn að það var ekki sjens að ég væri að fara í réttir, enda var grenjandi rigning og ógeðslegt rok. Og þar sem ég var hjá frænkuminni í Árnesi komst ég ekki strax í Breiðás en þá var ekki annað í spilunum en að fara aftur að sofa.
Svo þegar ég var að fara heim seinna um kvöldið þá var bara snjókoma og læti á heiðinni hehehe
En þetta er komið nóg í bili bæjó spæjó
Nýjar Myndir eru komnar á síðuna þær eru þarna í Myndirnar Mínar
Réttir að nálgast 12 september 2007
Posted by sigurveig in Uncategorized.add a comment
Jæjó. Jæja þá er skólinn í fullum snúning. Er að massa mætinguna enda verð að mæta svo maður getur skroppið til Stokkhólms. Er með 99% og tel ég það vera mjög gott miða við hinar annirnar.
Svo fór ég til læknis á mánudaginn og hann vildi endilega setja á mig ofnæmisplástra og eru þeir á bakinu á mér og núna er ég með 3 risa plástra á bakinu, er að vera nokkuð pirruð á því, því ég fæ ekki að taka þá af fyrr en í kvöld.
Svo er það aðal málið á föstudaginn eru Hrunaréttir og það er alveg magnaður viðburður hehehe. Rollur útum allt jarmandi á fullu og ekki má gleyma öllu fólkinu sem maður hittir þarna. Svo er planið að fara á réttarball í Árnesi þar sem Á móti sól spilar. Þetta er nú ekki uppáhalds hljómsveitinn mín en þetta ætti nú að reddast með smá bjór og góðum frænku hóp. hehehehe. 
Smá inn skot 5 september 2007
Posted by sigurveig in Uncategorized.add a comment
Heyrðu víst að maður er kominn með nýtt blogg er þá ekki tilvalið að skella öðru setti inn.
Skólinn er semsagt byrjaður á fullu. Maður gerir ekkert annað núna en að vakna kl 7 og reyna að fara á fætur var með mjög góða vekjara klukku í sumar ehehe Emil rak mig alltaf frammúr. Verð að vera mætt í skólann fyrir 8:15 og passa að fá ekki seint.
Er með smá áskorun á sjálfan mig að mæta í tímana og fá ekki seint, jújú það er stór ástæða fyrir þessari áskorun því ég ætla mér að skreppa í burtu frá skólanum í heila 7 daga og skella mér til Stokkhólms og kíkja á menninguna þar, en samt helst þá að kíkja á hann Emil minn sem er staddur þarna úti að læra á fullu.
Ég er semsagt strax farinn að hlakka til að sjá hann Emil aftur, hann fór samt bara á Laugardaginn haha. Ég er búinn að kaupa mér miða út og til baka, fer 17 okt og kem heim 28 okt, verð allt í allt í 11 daga sem verður geggjað stuð.
Svo hérna til hliðar er ég með glænýja mynda síðu sem heitir MYNDIRNAR MÍNAR þar er hægt að sjá allt það sem ég gerði í sumar voða mikið fjör, meðal annars fór ég á mótorhjól það var geggjað.

Þetta verður bara stutt í þetta sinn þarf að fara læra pínu núna til að vera reddí í spænsku á morgunn.
P.s það er eingin gesta bók hérna svo endilega commentið bara til að láta vita af ykkur krúsidúllurnar mínar. Bæ í bili