jump to navigation

Nakið fólk 24 september 2007

Posted by sigurveig in Uncategorized.
trackback

Jæja þá er nakta fólkið aftur farið á stjá. Já ég skrapp út í búð áðan og það var bara nokkuð gott þar sem ég var frekar svöng. En þegar ég kem heim og er að labba upp stigann til að komast heim til mín lít ég aftur fyrir mig, veit ekki af hverju en ég gerði það samt. það sem við mér blasti var ekki falleg, þarna í íbúðinni á móti var 1 verulega nakinn kona og 1 stikki hálfnakinn kall.

Ég hló alveg ótrúlega mikið því þetta er svo fáránlegt. Ég fór inn til mín og fór inn í herbergið mitt því ég ætlaði í tölvuna. En nei nei ég var víst búinn að draga frá inni hjá mér áður en ég fór út og um leið og ég kem inn þá blasir þessi sjón aftur við mér. En þá er 1 önnur kona búinn að bætast í hópinn heheh. Ég get svo svarið það þetta fólk er verulega klikk. Allir bara í gúddí fíling inní eldhúsi alsberir að kela. Já þar sem ég hef ekki mikinn áhuga á að horfa á þetta dró ég fyrir allt sem hægt var að draga fyrir.

Ég held að ég þurfir að senda þessu fólki bréf og vinsamlega biðja þau um að kaupa sér gardínur í eldhúsið hjá sér. Ehhehe. Þetta var semsagt morguninn hjá mér.

En um helgina var alsherja tiltektar æði hérna heima. Ég tók til í báðum herbergjunum og stóð mig með prýði. Ég og mamma fórum meyra að segja í IKEA að skoða okkur um og þar fékk ég fullt af kössum til að hafa smá skipulag á draslinu mínu.

Ummæli»

1. Unnur - 24 september 2007

jáhá, fólk á nú eitthvað verulega bágt verð ég að segja…
svaka upplifun!
held þú ættir bara að skrifa bréf til þeirra og setja í póstkassann hja þessu fólki!

2. Anna Björk - 25 september 2007

AHAHAHAHAHA… en fyndið:D:D

3. Sissa - 28 september 2007

Já þetta er rosalegt!!! hehehehe fólk er greinilega ekki með fulle fem :/ Mæli með að skrifa þeim bréf hehe vinsamlegast hættið öllu keleríi í eldhúsinu :D