Óvissuferð 2 október 2007
Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.trackback
Halló halló halló. Já ég er hef nú ekki séð neitt af nöktu fólki síðan ég bloggaði síðast og er ég alveg sátt með það.
En síðasta föstudag var nú nokkuð um húlumhæ hjá mér. Það var ekki meyra né minna en eitt stykki óvissuferð hjá Parlogis.
Ég mætti hress og kát í vinnuna til að hjálpa fólkinu að klára daginn svo rútan þyrfti ekki að bíða eftir okkur. Þegar við vorum búinn að vinna fórum við í mötuneytið og fengum við þar bjór og samlokur það var mjög gott þar sem ég var að deyja úr hungri.
Rútan kom kl 5 og var ferðinni heitið á Eyrabakka. Það var voða fjör í rútunni allir syngjandi og trallandi með vín í hendi.
Þegar við komum á Eyrabakka var grenjandi rigning og frekar dimmt. En ég lét það ekki stoppa mig ég fór bara í gönguskóna, pollabuxurnar og góða úlpu og skellti mér út í rigninguna.
Við fórum í fullt af leikjum og var ég í appelsínugula liðinu sem var náttúrulega bara langbest. Við fórum í Axar kast og ég hitti ekki neitt, víkingurinn er ekki var ekki alveg í mér, enda var ég að drekka Foster minnir mig hehe. svo fórum við í stígvéla kast og við enduðum á drumbakasti og viti menn ég kastaði lengst af drumbakösturunum. Enda ekki furða við stelpurnar fengum lítinn trítil drumb til að kasta hehehe.
Eftir þetta vorum við vel út köstuð og frekar blaut í gegn. Þá fórum við inn í Rauða Húsið og fengum okkur meyra að drekka. Svo eftir smá tíma var hlaðborðið opnað og það var ótrúlega gott!!!!!!!
Í rútunni heim voru allir frekar skrautlegir. Ég fékk að finna mikið fyrir því þar sem ég var örugglega eina manneskjan sem var bara búinn að drekka 3 bjóra og fann ekkert á mér. Í rútunni dó fólk úr áfengis dauða. Einhver ældi vel og vandlega í poka sem betur fer og allir hinir voru reyndar í góðum gír. Þegar ég kom heim þá var ég alveg búinn á því stein sofnaði…….
Svo var svaka fjör þegar hún Þórunn Emilía kom í heimsókn til okkar. Við skemmtum okkur ótrúlega vel saman og erum við bestar í að syngja Afi minn og Amma mín og Höfuð herðar né og tær. Hlakka ekkert smá til í febrúar þegar hinn ormurinn kemur í heiminn.
Heyrumst seinna og ekki vera feiminn við að kvitta fyrir ykkur
Hola!! Það hefur bara verið svaka gaman
Þú þarft að fara að herða drykkjuna, þetta gengur ekki hehe segi bara svona
Hún er nú meiri skottan hún Þórunn Emilía… gaman að geta fengið svona kríli lánuð
Og heldur betur stuð þegar strákurinn kemur (ég giska á að það sé strákur)
En ég bið að heilsa þér í bili mi amiga og ég verð að fara að heyra í þér fljótlega!!! Þér er líka alltaf velkomið að hringja whenever, en ég þarf samt að fara að gera það líka
Furðulegt að maður hringi ekkert…. Þó ég sé bara heima að horfa á tv :/ Algjör auli!!
Blessó
Haha rigning á Eyrabakka… gat það verið:P annars bara sætar myndir af Þórunni, hún er svo mikil krúttla:D