klipping- sund- sofa og sofa. 24 nóvember 2007
Posted by sigurveig in Uncategorized.2 comments
Jæjos pæjos
Já já já hvað á maður að segja nema að það er næstum vika í prófin. Vúhú eða ekki, núna þarf maður að fara að plana á fullu hvernig lærdómurinn verður. Svo í morgunn gerði ég þann frábæra hlut að sofa yfir mig alveg svakalega hehehe. Átti að fara í Landafræði klukkan 8:15 en vaknaði nú bara kl 9:30 og þá voru 10 mín eftir af tímanum hehehe. En þá hringdi Unnur bara í mig og við fórum í morgun sund eða við vorum bara í pottunum. Maður leggur það ekki á sig að fara í kalda sundlaug heheh heldur vil ég vera í heitum potti jumm summ.
Ég og Raggi T (erum í spænsku 403 samann) fórum með magnaðan fyrirlestur í gær. Við fjölluðum um Guatemala og það voru allir frekar kátir þegar við vorum að flytja þetta verk. Fólk var að hlæja og hafa gaman og kennarinn var að missa sig, hún þurftir allaf að stoppa fyrir lesturinn og segja hvað þetta væri á íslensku af því við vorum talandi spænsku. Hún var allaveganna í Svaka góðum gír og ætla ég nú að vona að ég fái eitthvað fyrir þetta dæmi.

En já síðan ég bloggaði síðast þá er ég búinn að fá ælupest í 1 dag og var svona slöpp í viku eftir það eeennn núna er ég í góðum gír. Enda nennir maður ekki að vera með magapest í marga daga.
Svo í dag fór ég í klippingu til hennar Erlu frænku. Það kom bara mjög vel út er voða ánægð núna
.
Svo fékk ég voða skemmtilegt bréf um daginn. 12 Janúar verður Reunion hjá árgangi 86 í Hjallaskóla. Það verður nú meyra sprellið. Hehe

(vá hvað við erum alltaf sætar hehehe)
En vá hvað ég er farinn að hlakka til jólanna Þórunn Emilía verður 2 ára, Sissa er að koma á klakann 14 des þá ætlum við stúlkurnar að hafa eitthvað glens vona ég nú. Svo er hann Emil að fara að koma líka hann kemur 22 og reyndar 1 des þá er ég að fara á Jólahlaðborð með Parlogis. Þannig að Desember er pakk fullur og ekki má nú gleyma Jólunum og öllu sem er í kringum það. Ok ég er semsagt farinn að spá mikið í Jólin heheheh.
Tölvan bilaði en þetta var allt í gúddí 6 nóvember 2007
Posted by sigurveig in Uncategorized.3 comments
Jæja þá er kannski tími fyrir annað blog, það var ótrúlega gaman í Svíþjóð og ekki vildi ég koma heim
En núna er ég í góðum fíling.
Um daginn var tölva mín voða þyrst og vildi endilega spaka á smá malti og appelsín blöndu ehhehe með þeim afleiðingum að hún drakk yfir sig og bilaði pínu.
Þá skellti ég mér bara í Elko og fékk nýja tölvu því ég var tryggð fyrir þessum klaufaskap. Fékk flakkara lánaðan hjá mömmu hans Emils og sparaði 7000 kall því það kostar svona næstum 7000 kall að færa öll gögn á milli tölva hehe.
En ég er komin með þessa fínu nýju tölvu hún er geggjað flott og ég er mjög ánægð með hana. Mæli með að fólk kaupi viðbótatryggingu.
Og svo er næsta mál ég fór í Kringluna á laugardaginn og viti menn ég fór og keypti mér nýja skó. Þetta eru jólaskórnir
mínir heheh.
Annars er bara allt á fullu í skólanum. Búinn að fara í munnlegt próf og svo er spænsku próf á morgunn og næsta vika er pökkuð af dóti sem þarf að skila og klára hehe skólinn er semsagt alveg að vera búinn.
Þá koma bara jólin og vinna og auðvita má ekki gleyma að Emil kemur í lok desember og ég er byrjuð að telja niður hehe og Sissa kemur líka heim um jólin. Allt að gerast á þessum bæ.