klipping- sund- sofa og sofa. 24 nóvember 2007
Posted by sigurveig in Uncategorized.trackback
Jæjos pæjos
Já já já hvað á maður að segja nema að það er næstum vika í prófin. Vúhú eða ekki, núna þarf maður að fara að plana á fullu hvernig lærdómurinn verður. Svo í morgunn gerði ég þann frábæra hlut að sofa yfir mig alveg svakalega hehehe. Átti að fara í Landafræði klukkan 8:15 en vaknaði nú bara kl 9:30 og þá voru 10 mín eftir af tímanum hehehe. En þá hringdi Unnur bara í mig og við fórum í morgun sund eða við vorum bara í pottunum. Maður leggur það ekki á sig að fara í kalda sundlaug heheh heldur vil ég vera í heitum potti jumm summ.
Ég og Raggi T (erum í spænsku 403 samann) fórum með magnaðan fyrirlestur í gær. Við fjölluðum um Guatemala og það voru allir frekar kátir þegar við vorum að flytja þetta verk. Fólk var að hlæja og hafa gaman og kennarinn var að missa sig, hún þurftir allaf að stoppa fyrir lesturinn og segja hvað þetta væri á íslensku af því við vorum talandi spænsku. Hún var allaveganna í Svaka góðum gír og ætla ég nú að vona að ég fái eitthvað fyrir þetta dæmi.

En já síðan ég bloggaði síðast þá er ég búinn að fá ælupest í 1 dag og var svona slöpp í viku eftir það eeennn núna er ég í góðum gír. Enda nennir maður ekki að vera með magapest í marga daga.
Svo í dag fór ég í klippingu til hennar Erlu frænku. Það kom bara mjög vel út er voða ánægð núna
.
Svo fékk ég voða skemmtilegt bréf um daginn. 12 Janúar verður Reunion hjá árgangi 86 í Hjallaskóla. Það verður nú meyra sprellið. Hehe

(vá hvað við erum alltaf sætar hehehe)
En vá hvað ég er farinn að hlakka til jólanna Þórunn Emilía verður 2 ára, Sissa er að koma á klakann 14 des þá ætlum við stúlkurnar að hafa eitthvað glens vona ég nú. Svo er hann Emil að fara að koma líka hann kemur 22 og reyndar 1 des þá er ég að fara á Jólahlaðborð með Parlogis. Þannig að Desember er pakk fullur og ekki má nú gleyma Jólunum og öllu sem er í kringum það. Ok ég er semsagt farinn að spá mikið í Jólin heheheh.
já það var mega gott að fara í sund með þér elskan
össs… já það kemur fyrir að maður sofi yfir sig, það er ekki sniðugt!!!
þú gleymdir að nefna 20.desember en ég skal fyrirgefa þér það í þetta skiptið……………………………………………………………………………
bið að heilsa þér gamla geit vertu dugleg í espanol mi amiga chica;)
Já desember verður bara pakkfullur og skemmtilegur!
Allt að gerast þá hehe
Það hlýtur að vera fyrst kennarinn skemmti sér svona vel hehehehhehe voða stuð
Flott að heyra með fyrirlestur, vonandi færðu svo eitthvað almennilegt fyrir hann
En já við erum nú alltaf sætar
Erum nottla svo miklar gellur!!!!! Við gerum eitthvað skemmtilegt saman þann 14. þegar ég mæti á svæðið!! Svo auðvitað þann 20. þegar útskriftin er
HLAKKA SVO TIL AÐ SJÁ YKKUR
Það verður nú gaman líka að fá Emil heim .. og nottla jólin og allt heila klabbið hehe
Ég hef ekki séð svoo margar heil heil lengi
Ég er líka orðin mjööööög spennt yfir 12. janúar!! Þetta verður snilld
Hvernig léstu svo klippa þig ?
Jæja heyrumst fljótlega honey boney
Kv Sissa