PRófin búinn og Emil að koma og jólin líka og allt 20 desember 2007
Posted by sigurveig in Blogroll.2 comments
Jæja jæja jæja er ekki kominn tími á smá blogg hérna.
Já það er mikið búið að gerast hjá mér núna síðustu vikur. Ég var í prófum og var alveg að verða crazy. Var svo pirruð út í allt og alla að hálfa væri nóg. En það jafnaðist svo út þegar ég var búin í þessum prófum. Ég fór í Stærðfræði, Landafræði, Íslensku og sálfræði.
Svo fékk ég nú að vita úr prófunum síðasta mánudag og ég var svo stressuð kvöldið áður að ég get ekki sofnað og svo var ég svo ótrúlega stressuð þegar ég var að ná í þessar einkunni að ég næstum ældi fyrir utan FB það var allt að fara á hvolf í maganum á mér. Svo fer ég inn til kennarans og viti menn hann er ekki í stofunni. Þannig að ég þurfti að bíða í smá tíma þarna alveg að deyja úr stressi. En viti menn ég náði öllu var ekki búinn að nefna spænsku náði henni líka
Þetta var bara einn draumur í dós. Var alveg búin á því heheheh. Búin að vera svo stressuð að ég veit ekki hvert ég ætlaði og svo var ég svo spennt og kát og glöð eftir að hafa náð öllu að ég var alveg utanvið mig hehehe.
Ég gat varla unnið eftir að hafa fengið þetta. Svo ég er hætt að vera pirruð og stressuð núna hehhe núna er ég bara á fullu að bíða eftir að hann Emil komi frá Stokkhólmi það verður 22 des og ég er alveg að missa mig hérna hehehe.
Svo er annað mál á dagskrá hún Unnur litla Sveinsdóttir er að útskrifast úr MK á morgunn. Hérna er merkis viðburður á ferð hjá henni Unslu minni hehe( man hvað unnur hataði að ég kallaði hana þetta nafn) hún setur semsagt upp hvíta húfu á morgunn og ætla ég nú að kíkja á stelpuna og gefa henni smá gjöf
Annars er ég bara á fulli að vinna frá 7-7 eða 8-7 er ekki alveg að meika það að vakna svona snemma og viti menn ég er bara að fara taka verklega hlutann í Lyftaraprófinu sem ég tók í sumar. Það er mjög langt síðan ég tók bóklega og núna fæ ég loks að taka verklega, svo maður verur bara komin með próf á lyftara eftir smá
En ætla að fara að sofa enda vinna á morgunn. Og ef ég skrifa ekki fyrir jól þá segi ég bara