vúhú loksins bloggar maður 24 janúar 2008
Posted by sigurveig in Blogroll.3 comments
Jæja ætti maður kannski að blogga smá.
Það eru nú ár og aldir síðan ég bloggaði síðast. Jólin komu og það var mega fjör. Við vorum öll hérna heima í svaka góðum gír. Þórunn Emilía í svaka stuði að hjálpa öllum að opna pakkana. Svo fékk hún minn pakka og hætti bara að hjálpa við að opna pakkana
. Ég fékk rosa flott Pilgrim skartgripi frá honum Emil mínu og var ég alveg í skýjunum
. Kannski að ég hafi bara svona lista hérna
Mamma, pabbi og Amma : the north face jakka (rauðan)
Baldur, Lonni og Þórunn Emilía: 2000 púsla púsl
Haffi: Foo Fighter CD og Queens of the stone age CD
Ella amma og Ámundi: Kerta stjaki
Unnur: Rúmföt og teppi
Sissa: skál úr gleri
Emil : Pilgrim skartgripi
Fjölseildan hans Emils: Vettlingar
Steffí: augnskuggar. Vonandi hef ég ekki gleymt neinum en ef ég hef gert það þá segi ég bara sorrý stína.
En svo kom hann Emil 22 desember og það var frábært var búinn að bíða svo lengi eftir honum og loksins kom hann til mín!!
Þá er bara að segja frá áramótunum. Við vorum aðeins færri í þetta skiptið þar sem Baldur og CO voru hjá familíunni hennar Lonni. En það bættist einn í hópinn því Emil borðaði hjá okkur. Og eftir að hafa skotið upp einni stórri tertu og svo var skálað og skellt í sig smá víni. Ég og Emil fórum í partý hjá Jakob sem er vinur hans Emils og þar var eitthvað af fólki. En það var svo ógeðslegt veður að við nenntum ekki að fara neitt annað.
svo var náttúrulega aðaldagurinn 6 janúar þá var ég og Emil búinn að vera samann í 1 ár
við fórum út að borða á Ask og það var alveg ótrúlega gott og fengum magnaðan eftir rétt. Svo var skundað í Mosó og horft á flotta flugeldasýningu þar sem það var nú þrettándinn.
Annars er voða lítið búið að gerast hjá mér ég er bara búinn að vera með honum Emil og svo er það skólinn og vinna. En ég fór reyndar á skíði á sunnudaginn og það var magnað. Nema ég ver í ógeðslegum skíðaskóm ég er enn með mar eftir skóna hehe. En það er búið að vera geggjað gaman þennan mánuð nem kannski að hann Emil fór aftur til stokkhólms á mánudaginn og ég fæ ekki að sjá hann aftur fyrr en 14 mars.
Já nú man ég hehe ég fór á reionion ( endurkomu heheh) veit ekkert hvernig ég skrifa þetta. En árgangur 86 í Hjallaskóla kom samann og það var geggjað gaman. Við borðuðum öll samann í Hjallaskóla og það var frekar fyndið að allir sem voru samann í Hjalló sátu samann en svo var okkur tokkað upp. Eftir að hafa borðað á okkur gat var skundað í framsóknar salinn góða og þar var haldið heljarinnar partý ég og Unnur og fullt af krökkum vorum að missa okkur í stemmingunni. Ég var nú alveg orðinn nett á því eftir góð sopa af smá víni og mikið af fullnægingar skotum. Þá kom rúta sem fór með okkur niður í bæ. Í rútunni var ég og Sara að þamba 2L flösku af Tinto de verano sem er ótrúlega góður drykkur. En ég hitti hann Emil minn í bænum og vorum við á skrallinu þar til öllu lokaði. En áður en við skunduðum heim var skellt sér á nonna bita og fenið sér góðan bita.
Veit ekki hvað ég ætti að segja meyra nema ætla að vera virkari í blogginu núna ef einhver er að lesa þetta endilega kommendið.
P.S var að setja inn fullt af myndum í “Myndirnar mínar,,