jump to navigation

Tónleikar 26 febrúar 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
3 comments

Hólí mólí ég og Emil erum að fara á geggjaða tónleika í sumar!!
Við vorum að kaupa miða á útitónleika í Stokkhólmi og þar koma fram Foo Fighters og svo voru að bætast við Queens of the stone age og ég get svo svarið það ég er að deyja úr spenningi enda er Foo Fighters uppáhalds hljómsveitinn mín og er ég að fara á þá í 3 sinn :) :):):) og annað sinn á QOTSA
Svo eru The Hives líka að spila þarna og fullt í viðbót. Get ekki veðið vúhú.
Hérna er slóðinn á þennan atburð
http://wtai.se/

bloggi bloggi blogg 21 febrúar 2008

Posted by sigurveig in Blogroll, Litlu krílin.
1 comment so far

Já þá er kominn tími á eitt stykki blogg. Það er líka næstum mánuður síðan ég gerði þetta síðast enda ekki mikið búið að gerast hjá mér. Ég er búinn að ná mér í eitt stykki flensu var veik á miðvikudaginn ( ekki í gær) og alveg þar til á sunnudaginn þá leið mér pínu betur en er samt ekki búinn að ná þessu úr mér :) .
Annars er bara búið að vera crazy mikið að gerast í skólanum, allir kennararnir tóku þá ákvörðun að hafa próf á sama deginum þannig að ég fékk að fara í 3 próf og fara með 1 fyrirlestur í síðustu viku daginn áður en ég varð veik.

Núna geri ég ekkert annað en að bíða eftir bumbukrílinu hennar Lonni og Baldurs það á að fara koma í heiminn vonandi í næstu viku. Var svo að passa hana Þórunni Emilíu á miðvikudaginn og hún vildi sko ekki leifa mér að horfa á Dýrinn í hálsaskógi sem hún horfir á mörgusinnum á dag hehe en nei hún vildi sko horfa á BENIDIKT BÚÁLF sem ég er búinn að sjá svona  í þúsund sinnum . Þannig að við horfðum á þetta frábæra leikrit vorum dansandi og syngjandi alveg í klukku tíma. En svo fékk ég nóg og tékkaði hvað Baldur var með í tölvunni og viti menn hann var með Fóstbræður og sátum við Þórunn samann að horfa á fóstbræður og oft þegar Sigurjón Kjartansson kom á skjáinn þá sagði Þórunn alltaf pabbi hehehe ég ætlaði að deyja út hlátri.
Svo vildu hún ekki fara að sofa þessi litli ormur, hún vildi bara lesa og láta mig geima dúkkuna sína og jógó sem er hundurinn hennar heheh. Hún er nefnilega byrjuð að sofa í stórustelpu rúminu sem er ekki með rimlum og er það voðalegt sport hehe. já og svo fékk ég að kíkja á hana í sundi um daginn hún er svo mikið krútt þegar hún er í sundi gerir ekkert annað en að sulla og stríða pabba sínum :)

Fékk ég svo þennan rosalega flotta blómvönd frá Emil á valentínusardaginn, ég var alveg í skýjunum eftir að hafa fengið hann.

Svo styttist óðum í að Emil komi. Það eru núna 21 dagur hehehe. er farinn að hlakka pínu mikið til :) :) og svo er líka sæludagar í skólanum og svo páskafrí og ég er bráðum að verða frænka aftur og það er bara allt að gerast og ekki má nú gleyma að ég er að verða 22 ára 12 mars.

Svo verð ég líka að segja að ég elska snjóinn NEMA ÞEGAR HANN ER Á BÍLNUM MÍNUM. Ég veit ekki hvað ég er orðinn pirruð á því að skafa þennan litla bíl minn, það er oft 3-5 sinnum á dag heheh ef það snjóar :)

Kveð í bili bæjó