jump to navigation

flakkari um páskana 3 apríl 2008

Posted by sigurveig in Blogroll, Ferðalög, Ísland.
trackback

Buenos dias
Hann Emil minn er rokinn aftur til Stokkhólms að læra á fullu eftir tveggja vikna hlé. Hann kom til mín 14 mars og var það nú bara algjört æði :) .
Ég hélt smá afmælisteiti daginn eftir að hann kom þar sem ég var nú 22 ára gömul. Já svo má ekki gleyma að ég tók mér frí frá vinnunni á meðan páskafríði var í skólanum og hef ég nú bara aldrei gert það áður. Í þessu fríi fórum við Emil á Þorvaldseyri ( sveitabær undir Eyjafjöllum) og gistum þar eina nótt því stefnan var tekinn á Eyjafjallajökul. Þetta var alveg frábær ferð við komumst reyndar ekki alveg upp vegna þessa að snjórinn var svo leiðinlegur og svo var stórt ský yfir toppnum. En á leiðinni niður fóru öll ský af himninum sem var frekar fúlt en þessi fer var samt geggjuð. Við Emil brunuðum á Vík og fengum okkur einn góðan subbuborgara og brunuðum svo í bæinn.

Fór svo í bláa lónið um daginn og viti menn vörubílarnir voru að byrja að mótmæla og var það mjög gott en ég nennti bara ekki að bíða í röð á eftir þeim. Þannig að ég Emil og Yarisinn þutum í gegnum krókaleiðir í hafnarfirðinum og kópavoginum og rétt sluppum fram fyrir vörubílana og vorum síðasti bíll sem komst fyrir framan þá hehe. Þannig á leiðinni í bláa lónið var bara róleg heit hehe.
Já og það var ótrúlega gott að skella sér í lónið. Þarna var stappað af útlendingum og mikið af stórum mjög stórum köllum frá Danmörku hehe með mjög mjóar konur þetta var frekar fyndið. Þetta var alveg heill her.

Svo var árshátíð hjá Parlogis síðasta laugardag og var það mjög gaman. Ég fór í greiðslu hjá Erlu frænku og kom það mjög vel út :) . Svo var skundað á hótel Selfoss þar sem við gistum eina nótt. Við fengum ótrúlega góðan mat og var ég svo södd að ég gat bara ekki dansað hehehe. við trölluðum eitthvað fram á nótt en svo var ég svo þreytt að við fórum að sofa ég helt að klukkan var orðinn 4 eða eitthvað en hún var nú bara 2.

Svo fór hann Emil á mánudaginn kl 7:50 og var ég ekkert sérstaklega kát. En það er allt í gúddí ég er að fara til hans 3 júní og verð í 2 vikur.

En ég verð að fara halda áfram að taka eftir í tíma. Er í sögu núna :) já og það tók mig 30 mín að komast í skólann áðan í staðin fyrir 10 mínotur :)

Adios amigos.

Ummæli»

No comments yet — be the first.