próf og pirringur 25 apríl 2008
Posted by sigurveig in Uncategorized.trackback
Jahá það er mikið búið að vara í gangi í þjóðfélaginu og hef ég ekki verið að fylgjast mikið með þar nema þegar vörubílstjórar voru að mótmæla og allt fór í háaloft. En svo fékk ég alveg sjokk þegar ég var að hlusta á fréttirnar á bylgjunni á miðvikudaginn þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni.
Þá var verið að tala við stelpu sem var svona 13 eða 14 ára og hún var að kasta eggjum og svo spurði fréttamaðurinn
>afhverju ertu að kasta eggjum í lögregluna
þá sagði stelpan
>æ bara. Það var bara kassi fullur af eggjum hérna og við byrjuðum bara að kasta, bara til að skapa stemmingu eða eitthvað!!!!
Alltaf gott að skapa stemmingu með því að kasta eggjum í lögguna. Ég var svona nett pirruð á þessu því ég hata svona gelgju stæla. Og svo var hún líka spurð hvort hún væri ekki hrædd við að ver handtekin og þá kom bara stórt NEI.
Ég var alveg stein hissa á þessum kjánaskap í þessum krökkum þau voru ekki að mótmæla bara að skapa stemmingu.
En annars er bara allt að gerast hérna hjá mér. Er núna á fullu að reyna að læra því prófin eru að nálgast. Mitt fyrsta próf er í stærðfræði og er 3 maí held ég og svo koma hin seinna. Er strax orðinn stressuð og líkar það ekki vel.
En ætla að halda áfram að læra, er búinn að koma þessu frá mér hvað mér fannst þetta fáránlegt hjá þessum krökkum.
Jájá þvílík stemning!!! Hvaða bull er þetta, taka þessa krakkaskratta og flengja þá hehehehe þvílíkir hálfvitar!!
Ég reyni svona að fylgjast með þessu í gegnum netið.. er eiginlega hætt því núna samt þannig að ég veit ekki mikið hvað er að gerast
Vertu dugleg að læra fyrir prófin – Reynir bara þitt besta, það er ekki hægt að gera betur en það
Þú rúllar þessu upp stelpa!!
Kv Sissa