og litla mús heitir????????? 24 maí 2008
Posted by sigurveig in Uncategorized.trackback
Jæja jæja jæja
Þá er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Ég tók prófin og ég var svo stressuð að ég vissi bera ekki hvert ég væri að fara. En ég bara náði barasta öllu samann og er þá planið bara að ná öllu næst og útskrifast næstu jól . Ég svo massaði stærðfræðina og fékk ég 7 og þakka ég honum Emil fyrir það hehehe. hann var auka kennarinn minn.
svo er vinnan byrjuð á fullu og er það bara fínt þar sem ég á ekki mikinn pening.
En í dag var merkis viðburður hún Minni Mús var skýrð í dag og heitir hún Gunnhildur María Baldursdóttir og er það eftir báðum ömmunum og eru allir í skýjunum. En það var nú frekar fyndið hvað skeði áður en ég fór í kirkjuna. Ég fór með sultukrukkur í salinn sem veislan var haldinn og var að segja þær á borðið og þá sé ég þessa sætu mynd af Minni mús og er að skoða hana og svo fatta ég að þarna er nafnið og ég blóta svo mikið hehehe. ég vissi þá nafnið áður en ég fór í sjálfa skírnina hehehe. ég ræddi við hann Baldur minn og skammaði hann fyrir að láta mig ekki vita af þessu heheheh.
Svo var farið og hakkað í sig kræsingar og leikið við Þórunni Emilíu stóru systur.
Svo er náttúrulegar bara svaka talning í gangi hjá mér því ég er að fara til Emils eftir 9 daga í dag hehehe og er ég alveg að deyja hérna mig hlakkar svo til
Til Hamingju Gunnhildur María Baldursdóttir

P.S var að byrja að horfa á Eurovision og mér finnst sænska kellan vera svo lík geimverunum í South park hehehe og hérna er mynd til að sanna það hehehe

sagði það hehehehhehe
flott nafn á sætri stelpu:P
Rosa flott nafnið hennar
Og þetta var nú smá fyndið með að þú sást nafnið hehehe en það er samt alltaf gaman að heyra það í skírninni bara
Vá bara 7 dagar núna í Stokkhólm … Uss hvað þetta er fljótt að líða, hvenær á svo að koma til mín
hehehe eða “okkar”
Alveg sammála með sænsku manneskjuna! Ég hugsaði strax og ég sá hana : Ojj þetta hlýtur að vera karlmaður, þetta er ógeðslegt!!!
Heyrumst
BLOGGADU KONA !!!!!!!!!