loksins loksins 20 október 2008
Posted by sigurveig in Uncategorized.1 comment so far
Jæja ég held nú að það sé löngu kominn tími á nýtt blogg.
Það sem er að frétta af mér er að ég er byrjuð í HSSK, Hjálparsveit Skáta í Kópavogi, ég er bara nýbyrjuð og er því nýliði, er búinn að fara á eitt stykki rötunar námskeið þar sem lært var á áttavita og kort og núna um helgina var ég á Fyrstuhjálp 1, það var rosa mikið fjör þar fórum á 2 æfingar, á fyrri æfingunni voru fullir jólasveinar sem duttu niður af þaki og fótbrotnuðu, og á seinni æfingunni var bílslys þar sem 6 voru slasaðir.
Þetta var nú rosa mikið fjör nema hvað að dýnurnar á Úlfljótsvatni eru hreinn viðbjóður. Þetta var bara eins og að sofa á gólfinu
. Hann Emil var með mér á þessu námseiði og var kallin bara hæstur í prófinu
ég fékk 7,4 hehe gerði nokkrar klaufa villur,
Jæja en ég er bara í skólanum að læra og læra það gengur bara ágætlega, ég var að velja fyrir næstu önn, vonandi næ ég öllu núna þá ætti ég að útskrifast í félagsfræði, því ég þarf að taka svo mikið í efnafræði og eðlisfræði og svoleiðis svo ég komist í Jarðfræði einn daginn.
Jæja ég hef ekki meyra að segja núna heyrumst
já og ég var að setja inn myndir í myndirnar mínar frá sumrinu