jump to navigation

loksins loksins 20 október 2008

Posted by sigurveig in Uncategorized.
trackback

Jæja ég held nú að það sé löngu kominn tími á nýtt blogg.

Það sem er að frétta af mér er að ég er byrjuð í HSSK, Hjálparsveit Skáta í Kópavogi, ég er bara nýbyrjuð og er því nýliði, er búinn að fara á eitt stykki rötunar námskeið þar sem lært var á áttavita og kort og núna um helgina var ég á Fyrstuhjálp 1, það var rosa mikið fjör þar fórum á 2 æfingar, á fyrri æfingunni voru fullir jólasveinar sem duttu niður af þaki og fótbrotnuðu, og á seinni æfingunni var bílslys þar sem 6 voru slasaðir.
Þetta var nú rosa mikið fjör nema hvað að dýnurnar á Úlfljótsvatni eru hreinn viðbjóður. Þetta var bara eins og að sofa á gólfinu :( . Hann Emil var með mér á þessu námseiði og var kallin bara hæstur í prófinu :) ég fékk 7,4 hehe gerði nokkrar klaufa villur, :)

Jæja en ég er bara í skólanum að læra og læra það gengur bara ágætlega, ég var að velja fyrir næstu önn, vonandi næ ég öllu núna þá ætti ég að útskrifast í félagsfræði, því ég þarf að taka svo mikið í efnafræði og eðlisfræði og svoleiðis svo ég komist í Jarðfræði einn daginn.

Jæja ég hef ekki meyra að segja núna heyrumst

já og ég var að setja inn myndir í myndirnar mínar frá sumrinu

Ummæli»

1. Nafnlaus - 20 október 2008

velkomin Helga mín í sveitina. loksins loksins!
já já það er bara fínt hjá þér að fa 7,4 í prófinu… ;)
svo er árshátíðin bráðlega ekki amalegt ;)

verðum í bandi soon… gangi þér að læra… ég ÆTLA að koma í útskriftarveislu til þín í desember ;)
kv.Unna