klipping á morgunn 15 apríl 2008
Posted by sigurveig in Blogroll, Uncategorized.1 comment so far
jæja þá er ég að fara breyta pínu til á kollinum á mér
ég var að panta klippingu hjá henni Erlu frænku minni og ætla ég að breyta pínu til. kominn tími til.
var að setja inn nokkrar nýjar myndir í möppuna MYNDIRNAR MÍNAR þegar ég fór á árshátíð hjá Parlogis og smá úr bústaðnum sem við familían fórum í.
núna eru bara próf og verkefni framundan enda bara 2 vikur eftir af skólanum þannig að það fer að skella á lokapróf
ekki alveg í uppáhaldi hjá mér.
hef þetta bara stutt núna bæjó spæjó
flakkari um páskana 3 apríl 2008
Posted by sigurveig in Blogroll, Ferðalög, Ísland.add a comment
Buenos dias
Hann Emil minn er rokinn aftur til Stokkhólms að læra á fullu eftir tveggja vikna hlé. Hann kom til mín 14 mars og var það nú bara algjört æði
.
Ég hélt smá afmælisteiti daginn eftir að hann kom þar sem ég var nú 22 ára gömul. Já svo má ekki gleyma að ég tók mér frí frá vinnunni á meðan páskafríði var í skólanum og hef ég nú bara aldrei gert það áður. Í þessu fríi fórum við Emil á Þorvaldseyri ( sveitabær undir Eyjafjöllum) og gistum þar eina nótt því stefnan var tekinn á Eyjafjallajökul. Þetta var alveg frábær ferð við komumst reyndar ekki alveg upp vegna þessa að snjórinn var svo leiðinlegur og svo var stórt ský yfir toppnum. En á leiðinni niður fóru öll ský af himninum sem var frekar fúlt en þessi fer var samt geggjuð. Við Emil brunuðum á Vík og fengum okkur einn góðan subbuborgara og brunuðum svo í bæinn.
Fór svo í bláa lónið um daginn og viti menn vörubílarnir voru að byrja að mótmæla og var það mjög gott en ég nennti bara ekki að bíða í röð á eftir þeim. Þannig að ég Emil og Yarisinn þutum í gegnum krókaleiðir í hafnarfirðinum og kópavoginum og rétt sluppum fram fyrir vörubílana og vorum síðasti bíll sem komst fyrir framan þá hehe. Þannig á leiðinni í bláa lónið var bara róleg heit hehe.
Já og það var ótrúlega gott að skella sér í lónið. Þarna var stappað af útlendingum og mikið af stórum mjög stórum köllum frá Danmörku hehe með mjög mjóar konur þetta var frekar fyndið. Þetta var alveg heill her.
Svo var árshátíð hjá Parlogis síðasta laugardag og var það mjög gaman. Ég fór í greiðslu hjá Erlu frænku og kom það mjög vel út
. Svo var skundað á hótel Selfoss þar sem við gistum eina nótt. Við fengum ótrúlega góðan mat og var ég svo södd að ég gat bara ekki dansað hehehe. við trölluðum eitthvað fram á nótt en svo var ég svo þreytt að við fórum að sofa ég helt að klukkan var orðinn 4 eða eitthvað en hún var nú bara 2.
Svo fór hann Emil á mánudaginn kl 7:50 og var ég ekkert sérstaklega kát. En það er allt í gúddí ég er að fara til hans 3 júní og verð í 2 vikur.
En ég verð að fara halda áfram að taka eftir í tíma. Er í sögu núna
já og það tók mig 30 mín að komast í skólann áðan í staðin fyrir 10 mínotur
Adios amigos.
bloggi bloggi blogg 21 febrúar 2008
Posted by sigurveig in Blogroll, Litlu krílin.1 comment so far
Já þá er kominn tími á eitt stykki blogg. Það er líka næstum mánuður síðan ég gerði þetta síðast enda ekki mikið búið að gerast hjá mér. Ég er búinn að ná mér í eitt stykki flensu var veik á miðvikudaginn ( ekki í gær) og alveg þar til á sunnudaginn þá leið mér pínu betur en er samt ekki búinn að ná þessu úr mér
.
Annars er bara búið að vera crazy mikið að gerast í skólanum, allir kennararnir tóku þá ákvörðun að hafa próf á sama deginum þannig að ég fékk að fara í 3 próf og fara með 1 fyrirlestur í síðustu viku daginn áður en ég varð veik.
Núna geri ég ekkert annað en að bíða eftir bumbukrílinu hennar Lonni og Baldurs það á að fara koma í heiminn vonandi í næstu viku. Var svo að passa hana Þórunni Emilíu á miðvikudaginn og hún vildi sko ekki leifa mér að horfa á Dýrinn í hálsaskógi sem hún horfir á mörgusinnum á dag hehe en nei hún vildi sko horfa á BENIDIKT BÚÁLF sem ég er búinn að sjá svona í þúsund sinnum . Þannig að við horfðum á þetta frábæra leikrit vorum dansandi og syngjandi alveg í klukku tíma. En svo fékk ég nóg og tékkaði hvað Baldur var með í tölvunni og viti menn hann var með Fóstbræður og sátum við Þórunn samann að horfa á fóstbræður og oft þegar Sigurjón Kjartansson kom á skjáinn þá sagði Þórunn alltaf pabbi hehehe ég ætlaði að deyja út hlátri.
Svo vildu hún ekki fara að sofa þessi litli ormur, hún vildi bara lesa og láta mig geima dúkkuna sína og jógó sem er hundurinn hennar heheh. Hún er nefnilega byrjuð að sofa í stórustelpu rúminu sem er ekki með rimlum og er það voðalegt sport hehe. já og svo fékk ég að kíkja á hana í sundi um daginn hún er svo mikið krútt þegar hún er í sundi gerir ekkert annað en að sulla og stríða pabba sínum
Fékk ég svo þennan rosalega flotta blómvönd frá Emil á valentínusardaginn, ég var alveg í skýjunum eftir að hafa fengið hann.
Svo styttist óðum í að Emil komi. Það eru núna 21 dagur hehehe. er farinn að hlakka pínu mikið til
og svo er líka sæludagar í skólanum og svo páskafrí og ég er bráðum að verða frænka aftur og það er bara allt að gerast og ekki má nú gleyma að ég er að verða 22 ára 12 mars.
Svo verð ég líka að segja að ég elska snjóinn NEMA ÞEGAR HANN ER Á BÍLNUM MÍNUM. Ég veit ekki hvað ég er orðinn pirruð á því að skafa þennan litla bíl minn, það er oft 3-5 sinnum á dag heheh ef það snjóar
Kveð í bili bæjó
vúhú loksins bloggar maður 24 janúar 2008
Posted by sigurveig in Blogroll.3 comments
Jæja ætti maður kannski að blogga smá.
Það eru nú ár og aldir síðan ég bloggaði síðast. Jólin komu og það var mega fjör. Við vorum öll hérna heima í svaka góðum gír. Þórunn Emilía í svaka stuði að hjálpa öllum að opna pakkana. Svo fékk hún minn pakka og hætti bara að hjálpa við að opna pakkana
. Ég fékk rosa flott Pilgrim skartgripi frá honum Emil mínu og var ég alveg í skýjunum
. Kannski að ég hafi bara svona lista hérna
Mamma, pabbi og Amma : the north face jakka (rauðan)
Baldur, Lonni og Þórunn Emilía: 2000 púsla púsl
Haffi: Foo Fighter CD og Queens of the stone age CD
Ella amma og Ámundi: Kerta stjaki
Unnur: Rúmföt og teppi
Sissa: skál úr gleri
Emil : Pilgrim skartgripi
Fjölseildan hans Emils: Vettlingar
Steffí: augnskuggar. Vonandi hef ég ekki gleymt neinum en ef ég hef gert það þá segi ég bara sorrý stína.
En svo kom hann Emil 22 desember og það var frábært var búinn að bíða svo lengi eftir honum og loksins kom hann til mín!!
Þá er bara að segja frá áramótunum. Við vorum aðeins færri í þetta skiptið þar sem Baldur og CO voru hjá familíunni hennar Lonni. En það bættist einn í hópinn því Emil borðaði hjá okkur. Og eftir að hafa skotið upp einni stórri tertu og svo var skálað og skellt í sig smá víni. Ég og Emil fórum í partý hjá Jakob sem er vinur hans Emils og þar var eitthvað af fólki. En það var svo ógeðslegt veður að við nenntum ekki að fara neitt annað.
svo var náttúrulega aðaldagurinn 6 janúar þá var ég og Emil búinn að vera samann í 1 ár
við fórum út að borða á Ask og það var alveg ótrúlega gott og fengum magnaðan eftir rétt. Svo var skundað í Mosó og horft á flotta flugeldasýningu þar sem það var nú þrettándinn.
Annars er voða lítið búið að gerast hjá mér ég er bara búinn að vera með honum Emil og svo er það skólinn og vinna. En ég fór reyndar á skíði á sunnudaginn og það var magnað. Nema ég ver í ógeðslegum skíðaskóm ég er enn með mar eftir skóna hehe. En það er búið að vera geggjað gaman þennan mánuð nem kannski að hann Emil fór aftur til stokkhólms á mánudaginn og ég fæ ekki að sjá hann aftur fyrr en 14 mars.
Já nú man ég hehe ég fór á reionion ( endurkomu heheh) veit ekkert hvernig ég skrifa þetta. En árgangur 86 í Hjallaskóla kom samann og það var geggjað gaman. Við borðuðum öll samann í Hjallaskóla og það var frekar fyndið að allir sem voru samann í Hjalló sátu samann en svo var okkur tokkað upp. Eftir að hafa borðað á okkur gat var skundað í framsóknar salinn góða og þar var haldið heljarinnar partý ég og Unnur og fullt af krökkum vorum að missa okkur í stemmingunni. Ég var nú alveg orðinn nett á því eftir góð sopa af smá víni og mikið af fullnægingar skotum. Þá kom rúta sem fór með okkur niður í bæ. Í rútunni var ég og Sara að þamba 2L flösku af Tinto de verano sem er ótrúlega góður drykkur. En ég hitti hann Emil minn í bænum og vorum við á skrallinu þar til öllu lokaði. En áður en við skunduðum heim var skellt sér á nonna bita og fenið sér góðan bita.
Veit ekki hvað ég ætti að segja meyra nema ætla að vera virkari í blogginu núna ef einhver er að lesa þetta endilega kommendið.
P.S var að setja inn fullt af myndum í “Myndirnar mínar,,
PRófin búinn og Emil að koma og jólin líka og allt 20 desember 2007
Posted by sigurveig in Blogroll.2 comments
Jæja jæja jæja er ekki kominn tími á smá blogg hérna.
Já það er mikið búið að gerast hjá mér núna síðustu vikur. Ég var í prófum og var alveg að verða crazy. Var svo pirruð út í allt og alla að hálfa væri nóg. En það jafnaðist svo út þegar ég var búin í þessum prófum. Ég fór í Stærðfræði, Landafræði, Íslensku og sálfræði.
Svo fékk ég nú að vita úr prófunum síðasta mánudag og ég var svo stressuð kvöldið áður að ég get ekki sofnað og svo var ég svo ótrúlega stressuð þegar ég var að ná í þessar einkunni að ég næstum ældi fyrir utan FB það var allt að fara á hvolf í maganum á mér. Svo fer ég inn til kennarans og viti menn hann er ekki í stofunni. Þannig að ég þurfti að bíða í smá tíma þarna alveg að deyja úr stressi. En viti menn ég náði öllu var ekki búinn að nefna spænsku náði henni líka
Þetta var bara einn draumur í dós. Var alveg búin á því heheheh. Búin að vera svo stressuð að ég veit ekki hvert ég ætlaði og svo var ég svo spennt og kát og glöð eftir að hafa náð öllu að ég var alveg utanvið mig hehehe.
Ég gat varla unnið eftir að hafa fengið þetta. Svo ég er hætt að vera pirruð og stressuð núna hehhe núna er ég bara á fullu að bíða eftir að hann Emil komi frá Stokkhólmi það verður 22 des og ég er alveg að missa mig hérna hehehe.
Svo er annað mál á dagskrá hún Unnur litla Sveinsdóttir er að útskrifast úr MK á morgunn. Hérna er merkis viðburður á ferð hjá henni Unslu minni hehe( man hvað unnur hataði að ég kallaði hana þetta nafn) hún setur semsagt upp hvíta húfu á morgunn og ætla ég nú að kíkja á stelpuna og gefa henni smá gjöf
Annars er ég bara á fulli að vinna frá 7-7 eða 8-7 er ekki alveg að meika það að vakna svona snemma og viti menn ég er bara að fara taka verklega hlutann í Lyftaraprófinu sem ég tók í sumar. Það er mjög langt síðan ég tók bóklega og núna fæ ég loks að taka verklega, svo maður verur bara komin með próf á lyftara eftir smá
En ætla að fara að sofa enda vinna á morgunn. Og ef ég skrifa ekki fyrir jól þá segi ég bara