flakkari um páskana 3 apríl 2008
Posted by sigurveig in Blogroll, Ferðalög, Ísland.add a comment
Buenos dias
Hann Emil minn er rokinn aftur til Stokkhólms að læra á fullu eftir tveggja vikna hlé. Hann kom til mín 14 mars og var það nú bara algjört æði
.
Ég hélt smá afmælisteiti daginn eftir að hann kom þar sem ég var nú 22 ára gömul. Já svo má ekki gleyma að ég tók mér frí frá vinnunni á meðan páskafríði var í skólanum og hef ég nú bara aldrei gert það áður. Í þessu fríi fórum við Emil á Þorvaldseyri ( sveitabær undir Eyjafjöllum) og gistum þar eina nótt því stefnan var tekinn á Eyjafjallajökul. Þetta var alveg frábær ferð við komumst reyndar ekki alveg upp vegna þessa að snjórinn var svo leiðinlegur og svo var stórt ský yfir toppnum. En á leiðinni niður fóru öll ský af himninum sem var frekar fúlt en þessi fer var samt geggjuð. Við Emil brunuðum á Vík og fengum okkur einn góðan subbuborgara og brunuðum svo í bæinn.
Fór svo í bláa lónið um daginn og viti menn vörubílarnir voru að byrja að mótmæla og var það mjög gott en ég nennti bara ekki að bíða í röð á eftir þeim. Þannig að ég Emil og Yarisinn þutum í gegnum krókaleiðir í hafnarfirðinum og kópavoginum og rétt sluppum fram fyrir vörubílana og vorum síðasti bíll sem komst fyrir framan þá hehe. Þannig á leiðinni í bláa lónið var bara róleg heit hehe.
Já og það var ótrúlega gott að skella sér í lónið. Þarna var stappað af útlendingum og mikið af stórum mjög stórum köllum frá Danmörku hehe með mjög mjóar konur þetta var frekar fyndið. Þetta var alveg heill her.
Svo var árshátíð hjá Parlogis síðasta laugardag og var það mjög gaman. Ég fór í greiðslu hjá Erlu frænku og kom það mjög vel út
. Svo var skundað á hótel Selfoss þar sem við gistum eina nótt. Við fengum ótrúlega góðan mat og var ég svo södd að ég gat bara ekki dansað hehehe. við trölluðum eitthvað fram á nótt en svo var ég svo þreytt að við fórum að sofa ég helt að klukkan var orðinn 4 eða eitthvað en hún var nú bara 2.
Svo fór hann Emil á mánudaginn kl 7:50 og var ég ekkert sérstaklega kát. En það er allt í gúddí ég er að fara til hans 3 júní og verð í 2 vikur.
En ég verð að fara halda áfram að taka eftir í tíma. Er í sögu núna
já og það tók mig 30 mín að komast í skólann áðan í staðin fyrir 10 mínotur
Adios amigos.
Stokkhólmur- Tallinn- Stokkhólmur = geggjað eða mega fjör 30 október 2007
Posted by sigurveig in Ferðalög.4 comments
Hæ allir samann. ég er kominn heim eftir 12 daga viðveru í Stokkhólmi sem var GEGGJAÐ.
en í gær var ég að fá mér Mallt og appelsín og varð fyrir því óhappi að glasið fór á hliðina og sullaðist á liklaborðið á Lappanum mínum og er ekki hægt að nota hana núna því allt er svona pínu bilað
en ég verð að nota heimilistölvuna og þar er ekkert stafsetningar forrit þannig að kannski verða fullt af villum en hverjum er ekki sama hehehe.
ég fór sem sagt til Stokkhólms á Miðvikudaginn 17 október. spennan var í hámarki á leiðinni og ekki hjálpaði að ég þurftir að fara í 40 mín rútu ferð inn í bæinn.
þar hitti ég hann Emil minn og var ég alveg í skíunum
:):):):):) . þessi dagur var bara tekin með ró og næði því við vorum að fara í siglingu til Tallin daginn eftir.
svo á fimmtudeginum fórum við í skipið til Tallin. þetta var risa skip, ég hef aldrey farið í svona stórt skip áður hehe. við vorum á 8 hæð í 2 manna herbergi voða flott. það voru 3 stelpur með okkur en þær voru í herberginu við hliðiná okkur. þetta var frábær sigling við silgdum um nótt svo ég sá ekkert hvar við vorum en maður tók nú alveg eftir því að ég væri á skipi því það var smá rugg á bátnum
en það var bara fjör hehe. það voru fullt af börum og eitt diskótek á staðnum við trölluðum þarna um nóttina en ég var orðin pínu þreitt kl 3 svo ég fór að sofa.
á föstudeginum vakna ég við eitthvað hljóð þá var kona að tala í hátalarakerfið og láta okkur vita að við værum kominn í Tallinn. vá hvað þessi kona talaði samt skrítið tungu mál þetta var svona bull mál hehehe gagganatagggana laggna mál hehe. mikið hlegið af því hehe . Ég og Emil fórum beint í leigubíl og brunuðum í dýragarðinn í Tallinn. í þessum blessaða Dýragarði var ofsalega mikið af geitum þær voru frá öllum heims hornum og voru í essinu sínu að stánga hvor aðra heheh. en við náðum að skoða fíl, slaungur og Tígrisdýr sem var mjög flott. en við áttum í smá vanda með að komasta aftur í gamla bæinn þar sem skipið var heheh. við fengum eingann leigubíl alveg sama hert við hringdum hehe. en þetta reddaðist á endanum við skoðuðum gamla bæinn og hann var mjög flottur þangað til ég fékk sjóriðu og vildi bara komast aftur í skipið og leggja mig í smá tíma eheh.
á leiðinni til baka aftur til Stokkhólms var pínu fjör á okkur en ekki mikið þannig að það fóru nú allir frekar snemma í háttin þetta kvöld.
á laugardeginum vaknaði ég við þessa dírindis rödd í hátalara kefinu og var mjög glöð að vakna hress og kát, eða ekki hehe semsagt um nóttina um svona 4 leitið vaknaði ég við að skipið hristis alveg ógeðsega mikið, og hvað er það fyrsta sem maður hugsar jú Titanic núna værum við búinn að klessa á og allt væri að fara að sökva hehehe. en þetta var ekki það alveglegt við vorum bara að stoppa í eitthverji höfn og það titraði svona í hliðarskrúfonum hehehe.
á Laugardeginum eða kvöldinu fór ég og Emil minn í partý hjá vini hans, hann mun heita Steinar og var ótrúlega gamann þar. fullt af fólki og fullt af fjöri ehehhe.
Sunnudagur: hann var tekinn með ró enda mikið partý stand á manni. öss og ekki er ég mjög góð í því. en við fórum á Muse tónleika um kvöldið sem voru geggjaðir. get ekki lýst því hvað þetta var flott nema það var magnað hehe. mæki með að fólk fari á tónleika með þeim gaurum.
Restin á ferðinni var svo bara róleg ég fór í allar H&M búðir sem ég fann og þær eru held ég 6 hehe og auðvitað dró ég hann Emil með í þessar ferðir og fanst honum alveg ógeðslega gaman
:) ehheh eða ekki alveg. ég fór í fiðrilda garð og þar voru mikið af flottum fiðrildum að reyna að ráðast á mig eins og allar flugur gera hehehe.
svo var stíft prógram á föstudeginum áður en ég fór þá var patrý örðu fólki sem Emil þekkir og líka á Laugardaginn þannig að það var voða gamann hjá mér þarna úti.
á sunnudaginn vildi ég ekki fara heim en þurfti þess samt því þessi æðislegi skóli sem ég er í beið spenntur eftir komu minni aftur, og reyndar þurfti Emil líka að fara í skólan hehehe.
þetta er svona pínu ferða sagan mín og ég er buinn að setja inn eitthvað af myndum og ætla að reyna að setja inn fleyri en þær eru allar á minni tölvu sem er biluð í augnablikinu
Óvissuferð 2 október 2007
Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.2 comments
Halló halló halló. Já ég er hef nú ekki séð neitt af nöktu fólki síðan ég bloggaði síðast og er ég alveg sátt með það.
En síðasta föstudag var nú nokkuð um húlumhæ hjá mér. Það var ekki meyra né minna en eitt stykki óvissuferð hjá Parlogis.
Ég mætti hress og kát í vinnuna til að hjálpa fólkinu að klára daginn svo rútan þyrfti ekki að bíða eftir okkur. Þegar við vorum búinn að vinna fórum við í mötuneytið og fengum við þar bjór og samlokur það var mjög gott þar sem ég var að deyja úr hungri.
Rútan kom kl 5 og var ferðinni heitið á Eyrabakka. Það var voða fjör í rútunni allir syngjandi og trallandi með vín í hendi.
Þegar við komum á Eyrabakka var grenjandi rigning og frekar dimmt. En ég lét það ekki stoppa mig ég fór bara í gönguskóna, pollabuxurnar og góða úlpu og skellti mér út í rigninguna.
Við fórum í fullt af leikjum og var ég í appelsínugula liðinu sem var náttúrulega bara langbest. Við fórum í Axar kast og ég hitti ekki neitt, víkingurinn er ekki var ekki alveg í mér, enda var ég að drekka Foster minnir mig hehe. svo fórum við í stígvéla kast og við enduðum á drumbakasti og viti menn ég kastaði lengst af drumbakösturunum. Enda ekki furða við stelpurnar fengum lítinn trítil drumb til að kasta hehehe.
Eftir þetta vorum við vel út köstuð og frekar blaut í gegn. Þá fórum við inn í Rauða Húsið og fengum okkur meyra að drekka. Svo eftir smá tíma var hlaðborðið opnað og það var ótrúlega gott!!!!!!!
Í rútunni heim voru allir frekar skrautlegir. Ég fékk að finna mikið fyrir því þar sem ég var örugglega eina manneskjan sem var bara búinn að drekka 3 bjóra og fann ekkert á mér. Í rútunni dó fólk úr áfengis dauða. Einhver ældi vel og vandlega í poka sem betur fer og allir hinir voru reyndar í góðum gír. Þegar ég kom heim þá var ég alveg búinn á því stein sofnaði…….
Svo var svaka fjör þegar hún Þórunn Emilía kom í heimsókn til okkar. Við skemmtum okkur ótrúlega vel saman og erum við bestar í að syngja Afi minn og Amma mín og Höfuð herðar né og tær. Hlakka ekkert smá til í febrúar þegar hinn ormurinn kemur í heiminn.
Heyrumst seinna og ekki vera feiminn við að kvitta fyrir ykkur
Réttir 16 september 2007
Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.3 comments
Jæja þá er maður búinn í réttunum og þar var ótrúlega gaman. Rollur og fólk útum allt.
Ég byrjaði á því að vakna kl 7 á föstudaginn og var kominn í breiðás um 9 mega fjör á leiðinni, Anna Björk, Jóhanna og vinkonur hennar fengu far hjá mér frá selfossi upp í sveit.
En réttirnar voru frábærar þarna mættu fullt af fólki og var alveg pakkað af rollum í smá tíma hhehe, ég sjálf náði 4 sem er alveg ágætt, var ekkert að massa mig í þessu hehehe. Enda voru þessar rollur alltaf að stanga mann í lærin. Er öll í marblettum eftir litlu gómsætu krúttin hehehe.
En svo eftir réttir var skundað í Breiðás og fengið sér ótrúlega góða réttarsúpu, hún er alltaf svo ótrúlega góð hjá ömmu að ég gat ekki hætt að borða hana heheh.
Þá var bara eitt eftir. Það var að skella sér á réttarball.
Ég fór í Árnes þar sem ballið var og við frænkurnar vorum strax komnar í fílinginn.
Það var ótrúlega gaman þarna, reyndar var ótrúlega mikið um slagsmál að ég var alveg að vera brjáluð, það voru alltaf 2 stelpur að slást þarna og skil ekki af hverju þeim var ekki hent út. En fyrir utan slagsmál var ég bara í mjög góðum fíling allt kvöldið.
Ég ætlaði að fara í skeiðaréttir og vaknaði ég kl 9 svo ógeðslega þunn að það var ekki sjens að ég væri að fara í réttir, enda var grenjandi rigning og ógeðslegt rok. Og þar sem ég var hjá frænkuminni í Árnesi komst ég ekki strax í Breiðás en þá var ekki annað í spilunum en að fara aftur að sofa.
Svo þegar ég var að fara heim seinna um kvöldið þá var bara snjókoma og læti á heiðinni hehehe
En þetta er komið nóg í bili bæjó spæjó
Nýjar Myndir eru komnar á síðuna þær eru þarna í Myndirnar Mínar
Sumarblogg 2007 31 ágúst 2007
Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.4 comments
Jæja jæja þá held ég að það sé kominn tími á eitt stykki blogg,
Ég er búinn að vera að ferðast og vinna í allt sumar og ætla að taka til hvað ég var að gera.
Ég kom fór til Mallorca 4 júní og var í 2 vikur þarna í frábæru veðri. Það var sól mest allan tíman og auðvitað mössuðum við Unnur tanið á sundlaugar bakkanum.
Þegar ég kom heim fór ég beint að vinna því ég eyddi alveg slatta mikið af pening þarna úti :/
En ég var nú ekki bara að vinna í sumar því ég fór allar helgar nema þrjár í ferðalög.
Fyrsta helgin eftir Mallorca var farið í Þjórsárdal: þar var trallað í tjaldi og var frekar gaman verð ég að segja. Gist í tjaldi og farið í gott grill og massa sund :
Svo voru tónleikar 26/6 með The Raptures og var það ótrúlega gaman þar sem ég hef verið að hlusta svolítið mikið á hana. Þarna voru allir treflar landsins mætti á einn stað til að vera menningarleg heehehe. En ég og Emil vorum í góðum gír á Nasa það kvöldið
Helgina eftir eða nánar tiltekið 29/6 var helginn tekin með trompi. Við Emil brunuðum strax eftir vinnu á föstudegi í veiðivötn. Við vorum komin þangað kl 9 fundum mömmu og pabba sem voru við Litlasjó og fórum að veiða. Emil veiddi nú 2 eða 3 fiska og ég annað eins, en mínir voru allir svo pínu litlir hehehe. Um kvöldið var skellt í sig grilluðu lambakjöti og með því. Ummm það var mjög gott
Laugardag var svo farið í massífa ferð, við fórum fyrst í Landmannalaugar sem var frábæst því það er svo fallegt það og svo var brunað fjallabak niðri þar var skoðað allt sem hægt var að skoða, t.d. Ófærufoss í Eldgjá sem var nokkuð flottur og svo enduðum við á Kirkjubæjarklaustri.
Sunndagur: fórum upp á Systrastapa, viðbjóður einn verð ég að segja (mjög erfitt), svo brunuðum við á Vík og skoðuðum allt það í kring fórum í fjörunna og kíktum á Dyrhólaey.
7-8 júlí, fór í partí og í mótorhjólaferð á Þingvelli sem var mjög gaman.
14 júlí var fjölskilduhátíð hjá Þingvöllum. Ég fékk hana Þóruni Emilíu lánaða og við fórum í hoppukastalann sem var ótrúlega gaman hehehe.
Á sunnudeginum fórum við Emil gullna hringinn. Skelltum okkur á Gullfoss og Geysir og vorum algjörir túristar.
19 júlí, Sænskur vinur hans Emils kom í til landsins og ég ákvað að fara með þeim í ferðalag enda finnst mér ekkert skemmtilegra.
Fimmtudagur: fórum á Geysi og þaðan var brunað á Kjöl. Við skunduðum beint upp í Kerlingarfjöll þar sem ég hef aldei komið áður. Keyrðum þar um og skoðuðum hveri, sumum fannst ekki nóg að skoða heitu uppspretturnar og skellu sér í smá bað. Eftir smá sull var skundað áfram í átt að Hveravöllum. Þar var tjaldað fengið sér bjór og skellt sér í náttúrulega pottin sem var þarna. Þetta var algjört æði vildi að ég væri með svona pott á svölunum !.
Föstudagur: ferðin var rétt að byrja. Við fórum á Akureyri og fengum okkur að borða og brunuðum svo á Mývatn þar sem við skoðuðum gamla gíga, Dimmuborgir (mjög flott) sprungur fullar af heitu vatni. Kíktum á Dettifoss sem var magnaður verð ég að segja. Svo var brunað í einum rykk í Ásbyrgi.
Laugardagur: fórum á Húsavík þar fengum við okkur síld, súpu og brauð með osti og skinku, en einnig skelltum við okkur á reðursafnið sem er þar í bæ, frekar skrautlegt lið það. Brunað á Mývatn farið í lónið þar( ekkert spes). Skundað á Akureyri og farið á djammið.
Sunnudagur: keyrt heim ekkert skoðaða á leiðinni.
27/7 fórum á strandir. Nánar tekið Gjögur á vestfjörðum
Fórum í flug, sund í sundlaug sem er í fjörunni og höfðum það mjög gott og hlunnindin voru mikil !!!
3/8-5/8 versló, vorum á föstudegi í sumarbústaðnum hennar ömmu. Laugardagur: fórum í Þórsmörk mjög gaman, sprungið dekk á og varðeldur. Svo var farið í veiðivötn og þar sem ekkert var veitt en samt var mjög gaman.
18/8 Mennigarnótt: fórum í bæinn um þrjú leitið og vorum að vappa um og horfa á tónleika, aðalega á Dillon fórum úr bænum þegar flugeldasýningin var búinn, mjög góður dagur
Og síðastliðna helgi leigði ég sumarbústað og vorum við Emil í honum alla helgina, það komu fullt af gestum á laugardeginum og var heljarinnar pottapartý.
Þetta er allt sumarið mitt veit að þetta er langt en vonandi hafið þið skemmt ykkur.