jump to navigation

bloggi bloggi blogg 21 febrúar 2008

Posted by sigurveig in Blogroll, Litlu krílin.
1 comment so far

Já þá er kominn tími á eitt stykki blogg. Það er líka næstum mánuður síðan ég gerði þetta síðast enda ekki mikið búið að gerast hjá mér. Ég er búinn að ná mér í eitt stykki flensu var veik á miðvikudaginn ( ekki í gær) og alveg þar til á sunnudaginn þá leið mér pínu betur en er samt ekki búinn að ná þessu úr mér :) .
Annars er bara búið að vera crazy mikið að gerast í skólanum, allir kennararnir tóku þá ákvörðun að hafa próf á sama deginum þannig að ég fékk að fara í 3 próf og fara með 1 fyrirlestur í síðustu viku daginn áður en ég varð veik.

Núna geri ég ekkert annað en að bíða eftir bumbukrílinu hennar Lonni og Baldurs það á að fara koma í heiminn vonandi í næstu viku. Var svo að passa hana Þórunni Emilíu á miðvikudaginn og hún vildi sko ekki leifa mér að horfa á Dýrinn í hálsaskógi sem hún horfir á mörgusinnum á dag hehe en nei hún vildi sko horfa á BENIDIKT BÚÁLF sem ég er búinn að sjá svona  í þúsund sinnum . Þannig að við horfðum á þetta frábæra leikrit vorum dansandi og syngjandi alveg í klukku tíma. En svo fékk ég nóg og tékkaði hvað Baldur var með í tölvunni og viti menn hann var með Fóstbræður og sátum við Þórunn samann að horfa á fóstbræður og oft þegar Sigurjón Kjartansson kom á skjáinn þá sagði Þórunn alltaf pabbi hehehe ég ætlaði að deyja út hlátri.
Svo vildu hún ekki fara að sofa þessi litli ormur, hún vildi bara lesa og láta mig geima dúkkuna sína og jógó sem er hundurinn hennar heheh. Hún er nefnilega byrjuð að sofa í stórustelpu rúminu sem er ekki með rimlum og er það voðalegt sport hehe. já og svo fékk ég að kíkja á hana í sundi um daginn hún er svo mikið krútt þegar hún er í sundi gerir ekkert annað en að sulla og stríða pabba sínum :)

Fékk ég svo þennan rosalega flotta blómvönd frá Emil á valentínusardaginn, ég var alveg í skýjunum eftir að hafa fengið hann.

Svo styttist óðum í að Emil komi. Það eru núna 21 dagur hehehe. er farinn að hlakka pínu mikið til :) :) og svo er líka sæludagar í skólanum og svo páskafrí og ég er bráðum að verða frænka aftur og það er bara allt að gerast og ekki má nú gleyma að ég er að verða 22 ára 12 mars.

Svo verð ég líka að segja að ég elska snjóinn NEMA ÞEGAR HANN ER Á BÍLNUM MÍNUM. Ég veit ekki hvað ég er orðinn pirruð á því að skafa þennan litla bíl minn, það er oft 3-5 sinnum á dag heheh ef það snjóar :)

Kveð í bili bæjó

vúhú loksins bloggar maður 24 janúar 2008

Posted by sigurveig in Blogroll.
3 comments

Jæja ætti maður kannski að blogga smá.
Það eru nú ár og aldir síðan ég bloggaði síðast. Jólin komu og það var mega fjör. Við vorum öll hérna heima í svaka góðum gír. Þórunn Emilía í svaka stuði að hjálpa öllum að opna pakkana. Svo fékk hún minn pakka og hætti bara að hjálpa við að opna pakkana :) . Ég fékk rosa flott Pilgrim skartgripi frá honum Emil mínu og var ég alveg í skýjunum :) . Kannski að ég hafi bara svona lista hérna
Mamma, pabbi og Amma : the north face jakka (rauðan)
Baldur, Lonni og Þórunn Emilía: 2000 púsla púsl
Haffi: Foo Fighter CD og Queens of the stone age CD
Ella amma og Ámundi: Kerta stjaki
Unnur: Rúmföt og teppi
Sissa: skál úr gleri
Emil : Pilgrim skartgripi
Fjölseildan hans Emils: Vettlingar
Steffí: augnskuggar. Vonandi hef ég ekki gleymt neinum en ef ég hef gert það þá segi ég bara sorrý stína.

En svo kom hann Emil 22 desember og það var frábært var búinn að bíða svo lengi eftir honum og loksins kom hann til mín!!
Þá er bara að segja frá áramótunum. Við vorum aðeins færri í þetta skiptið þar sem Baldur og CO voru hjá familíunni hennar Lonni. En það bættist einn í hópinn því Emil borðaði hjá okkur. Og eftir að hafa skotið upp einni stórri tertu og svo var skálað og skellt í sig smá víni. Ég og Emil fórum í partý hjá Jakob sem er vinur hans Emils og þar var eitthvað af fólki. En það var svo ógeðslegt veður að við nenntum ekki að fara neitt annað.

svo var náttúrulega aðaldagurinn 6 janúar þá var ég og Emil búinn að vera samann í 1 ár :) við fórum út að borða á Ask og það var alveg ótrúlega gott og fengum magnaðan eftir rétt. Svo var skundað í Mosó og horft á flotta flugeldasýningu þar sem það var nú þrettándinn.

Annars er voða lítið búið að gerast hjá mér ég er bara búinn að vera með honum Emil og svo er það skólinn og vinna. En ég fór reyndar á skíði á sunnudaginn og það var magnað. Nema ég ver í ógeðslegum skíðaskóm ég er enn með mar eftir skóna hehe. En það er búið að vera geggjað gaman þennan mánuð nem kannski að hann Emil fór aftur til stokkhólms á mánudaginn og ég fæ ekki að sjá hann aftur fyrr en 14 mars.

Já nú man ég hehe ég fór á reionion ( endurkomu heheh) veit ekkert hvernig ég skrifa þetta. En árgangur 86 í Hjallaskóla kom samann og það var geggjað gaman. Við borðuðum öll samann í Hjallaskóla og það var frekar fyndið að allir sem voru samann í Hjalló sátu samann en svo var okkur tokkað upp. Eftir að hafa borðað á okkur gat var skundað í framsóknar salinn góða og þar var haldið heljarinnar partý ég og Unnur og fullt af krökkum vorum að missa okkur í stemmingunni. Ég var nú alveg orðinn nett á því eftir góð sopa af smá víni og mikið af fullnægingar skotum. Þá kom rúta sem fór með okkur niður í bæ. Í rútunni var ég og Sara að þamba 2L flösku af Tinto de verano sem er ótrúlega góður drykkur. En ég hitti hann Emil minn í bænum og vorum við á skrallinu þar til öllu lokaði. En áður en við skunduðum heim var skellt sér á nonna bita og fenið sér góðan bita.

Veit ekki hvað ég ætti að segja meyra nema ætla að vera virkari í blogginu núna ef einhver er að lesa þetta endilega kommendið.

P.S var að setja inn fullt af myndum í “Myndirnar mínar,,

PRófin búinn og Emil að koma og jólin líka og allt 20 desember 2007

Posted by sigurveig in Blogroll.
2 comments

Jæja jæja jæja er ekki kominn tími á smá blogg hérna.
Já það er mikið búið að gerast hjá mér núna síðustu vikur. Ég var í prófum og var alveg að verða crazy. Var svo pirruð út í allt og alla að hálfa væri nóg. En það jafnaðist svo út þegar ég var búin í þessum prófum. Ég fór í Stærðfræði, Landafræði, Íslensku og sálfræði.
Svo fékk ég nú að vita úr prófunum síðasta mánudag og ég var svo stressuð kvöldið áður að ég get ekki sofnað og svo var ég svo ótrúlega stressuð þegar ég var að ná í þessar einkunni að ég næstum ældi fyrir utan FB það var allt að fara á hvolf í maganum á mér. Svo fer ég inn til kennarans og viti menn hann er ekki í stofunni. Þannig að ég þurfti að bíða í smá tíma þarna alveg að deyja úr stressi. En viti menn ég náði öllu var ekki búinn að nefna spænsku náði henni líka 
Þetta var bara einn draumur í dós. Var alveg búin á því heheheh. Búin að vera svo stressuð að ég veit ekki hvert ég ætlaði og svo var ég svo spennt og kát og glöð eftir að hafa náð öllu að ég var alveg utanvið mig hehehe.

Ég gat varla unnið eftir að hafa fengið þetta. Svo ég er hætt að vera pirruð og stressuð núna hehhe núna er ég bara á fullu að bíða eftir að hann Emil komi frá Stokkhólmi það verður 22 des og ég er alveg að missa mig hérna hehehe.
Svo er annað mál á dagskrá hún Unnur litla Sveinsdóttir er að útskrifast úr MK á morgunn. Hérna er merkis viðburður á ferð hjá henni Unslu minni hehe( man hvað unnur hataði að ég kallaði hana þetta nafn) hún setur semsagt upp hvíta húfu á morgunn og ætla ég nú að kíkja á stelpuna og gefa henni smá gjöf 

Annars er ég bara á fulli að vinna frá 7-7 eða 8-7 er ekki alveg að meika það að vakna svona snemma  og viti menn ég er bara að fara taka verklega hlutann í Lyftaraprófinu sem ég tók í sumar. Það er mjög langt síðan ég tók bóklega og núna fæ ég loks að taka verklega, svo maður verur bara komin með próf á lyftara eftir smá 

En ætla að fara að sofa enda vinna á morgunn. Og ef ég skrifa ekki fyrir jól þá segi ég bara

GLEÐILEG JÓL ALLIR SAMANN.

klipping- sund- sofa og sofa. 24 nóvember 2007

Posted by sigurveig in Uncategorized.
2 comments

Jæjos pæjos

Já já já hvað á maður að segja nema að það er næstum vika í prófin. Vúhú eða ekki, núna þarf maður að fara að plana á fullu hvernig lærdómurinn verður. Svo í morgunn gerði ég þann frábæra hlut að sofa yfir mig alveg svakalega hehehe. Átti að fara í Landafræði klukkan 8:15 en vaknaði nú bara kl 9:30 og þá voru 10 mín eftir af tímanum hehehe. En þá hringdi Unnur bara í mig og við fórum í morgun sund eða við vorum bara í pottunum. Maður leggur það ekki á sig að fara í kalda sundlaug heheh heldur vil ég vera í heitum potti jumm summ.

Ég og Raggi T (erum í spænsku 403 samann) fórum með magnaðan fyrirlestur í gær. Við fjölluðum um Guatemala og það voru allir frekar kátir þegar við vorum að flytja þetta verk. Fólk var að hlæja og hafa gaman og kennarinn var að missa sig, hún þurftir allaf að stoppa fyrir lesturinn og segja hvað þetta væri á íslensku af því við vorum talandi spænsku. Hún var allaveganna í Svaka góðum gír og ætla ég nú að vona að ég fái eitthvað fyrir þetta dæmi.

En já síðan ég bloggaði síðast þá er ég búinn að fá ælupest í 1 dag og var svona slöpp í viku eftir það eeennn núna er ég í góðum gír. Enda nennir maður ekki að vera með magapest í marga daga.
Svo í dag fór ég í klippingu til hennar Erlu frænku. Það kom bara mjög vel út er voða ánægð núna :) .
Svo fékk ég voða skemmtilegt bréf um daginn. 12 Janúar verður Reunion hjá árgangi 86 í Hjallaskóla. Það verður nú meyra sprellið. Hehe

(vá hvað við erum alltaf sætar hehehe)

En vá hvað ég er farinn að hlakka til jólanna  Þórunn Emilía verður 2 ára, Sissa er að koma á klakann 14 des þá ætlum við stúlkurnar að hafa eitthvað glens vona ég nú. Svo er hann Emil að fara að koma líka hann kemur 22 og reyndar 1 des þá er ég að fara á Jólahlaðborð með Parlogis. Þannig að Desember er pakk fullur og ekki má nú gleyma Jólunum og öllu sem er í kringum það. Ok ég er semsagt farinn að spá mikið í Jólin heheheh.

Tölvan bilaði en þetta var allt í gúddí 6 nóvember 2007

Posted by sigurveig in Uncategorized.
3 comments

Jæja þá er kannski tími fyrir annað blog, það var ótrúlega gaman í Svíþjóð og ekki vildi ég koma heim :( En núna er ég í góðum fíling.
Um daginn var tölva mín voða þyrst og vildi endilega spaka á smá malti og appelsín blöndu ehhehe með þeim afleiðingum að hún drakk yfir sig og bilaði pínu.
Þá skellti ég mér bara í Elko og fékk nýja tölvu því ég var tryggð fyrir þessum klaufaskap. Fékk flakkara lánaðan hjá mömmu hans Emils og sparaði 7000 kall því það kostar svona næstum 7000 kall að færa öll gögn á milli tölva hehe.

En ég er komin með þessa fínu nýju tölvu hún er geggjað flott og ég er mjög ánægð með hana. Mæli með að fólk kaupi viðbótatryggingu.
Og svo er næsta mál ég fór í Kringluna á laugardaginn og viti menn ég fór og keypti mér nýja skó. Þetta eru jólaskórnir mínir heheh.

Annars er bara allt á fullu í skólanum. Búinn að fara í munnlegt próf og svo er spænsku próf á morgunn og næsta vika er pökkuð af dóti sem þarf að skila og klára hehe skólinn er semsagt alveg að vera búinn.
Þá koma bara jólin og vinna og auðvita má ekki gleyma að Emil kemur í lok desember og ég er byrjuð að telja niður hehe og Sissa kemur líka heim um jólin. Allt að gerast á þessum bæ.

Stokkhólmur- Tallinn- Stokkhólmur = geggjað eða mega fjör 30 október 2007

Posted by sigurveig in Ferðalög.
4 comments

Hæ allir samann. ég er kominn heim eftir 12 daga viðveru í Stokkhólmi sem var GEGGJAÐ.

en í gær var ég að fá mér Mallt og appelsín og varð fyrir því óhappi að glasið fór á hliðina og sullaðist á liklaborðið á Lappanum mínum og er ekki hægt að nota hana núna því allt er svona pínu bilað :( en ég verð að nota heimilistölvuna og þar er ekkert stafsetningar forrit þannig að kannski verða fullt af villum en hverjum er ekki sama hehehe.

ég fór sem sagt til Stokkhólms á Miðvikudaginn 17 október. spennan var í hámarki á leiðinni og ekki hjálpaði að ég þurftir að fara í 40 mín rútu ferð inn í bæinn.

þar hitti ég hann Emil minn og var ég alveg í skíunum :) :):):):):) . þessi dagur var bara tekin með ró og næði því við vorum að fara í siglingu til Tallin daginn eftir.

svo á fimmtudeginum fórum við í skipið til Tallin. þetta var risa skip, ég hef aldrey farið í svona stórt skip áður hehe. við vorum á 8 hæð í 2 manna herbergi voða flott. það voru 3 stelpur með okkur en þær voru í herberginu við hliðiná okkur. þetta var frábær sigling við silgdum um nótt svo ég sá ekkert hvar við vorum en maður tók nú alveg eftir því að ég væri á skipi því það var smá rugg á bátnum :) en það var bara fjör hehe. það voru fullt af börum og eitt diskótek á staðnum við trölluðum þarna um nóttina en ég var orðin pínu þreitt kl 3 svo ég fór að sofa.

á föstudeginum vakna ég við eitthvað hljóð þá var kona að tala í hátalarakerfið og láta okkur vita að við værum kominn í Tallinn. vá hvað þessi kona talaði samt skrítið tungu mál þetta var svona bull mál hehehe gagganatagggana laggna mál hehe. mikið hlegið af því hehe . Ég og Emil fórum beint í leigubíl og brunuðum í dýragarðinn í Tallinn. í þessum blessaða Dýragarði var ofsalega mikið af geitum þær voru frá öllum heims hornum og voru í essinu sínu að stánga hvor aðra heheh. en við náðum að skoða fíl, slaungur og Tígrisdýr sem var mjög flott. en við áttum í smá vanda með að komasta aftur í gamla bæinn þar sem skipið var heheh. við fengum eingann leigubíl alveg sama hert við hringdum hehe. en þetta reddaðist á endanum við skoðuðum gamla bæinn og hann var mjög flottur þangað til ég fékk sjóriðu og vildi bara komast aftur í skipið og leggja mig í smá tíma eheh.

á leiðinni til baka aftur til Stokkhólms var pínu fjör á okkur en ekki mikið þannig að það fóru nú allir frekar snemma í háttin þetta kvöld.

á laugardeginum vaknaði ég við þessa dírindis rödd í hátalara kefinu og var mjög glöð að vakna hress og kát, eða ekki hehe semsagt um nóttina um svona 4 leitið vaknaði ég við að skipið hristis alveg ógeðsega mikið, og hvað er það fyrsta sem maður hugsar jú Titanic núna værum við búinn að klessa á og allt væri að fara að sökva hehehe. en þetta var ekki það alveglegt við vorum bara að stoppa í eitthverji höfn og það titraði svona í hliðarskrúfonum hehehe.

á Laugardeginum eða kvöldinu fór ég og Emil minn í partý hjá vini hans, hann mun heita Steinar og var ótrúlega gamann þar. fullt af fólki og fullt af fjöri ehehhe.

Sunnudagur: hann var tekinn með ró enda mikið partý stand á manni. öss og ekki er ég mjög góð í því. en við fórum á Muse tónleika um kvöldið sem voru geggjaðir. get ekki lýst því hvað þetta var flott nema það var magnað hehe. mæki með að fólk fari á tónleika með þeim gaurum.

Restin á ferðinni var svo bara róleg ég fór í allar H&M búðir sem ég fann og þær eru held ég 6 hehe og auðvitað dró ég hann Emil með í þessar ferðir og fanst honum alveg ógeðslega gaman :) :) ehheh eða ekki alveg. ég fór í fiðrilda garð og þar voru mikið af flottum fiðrildum að reyna að ráðast á mig eins og allar flugur gera hehehe.

svo var stíft prógram á föstudeginum áður en ég fór þá var patrý örðu fólki sem Emil þekkir og líka á Laugardaginn þannig að það var voða gamann hjá mér þarna úti.

á sunnudaginn vildi ég ekki fara heim en þurfti þess samt því þessi æðislegi skóli sem ég er í beið spenntur eftir komu minni aftur, og reyndar þurfti Emil líka að fara í skólan hehehe.

þetta er svona pínu ferða sagan mín og ég er buinn að setja inn eitthvað af myndum og ætla að reyna að setja inn fleyri en þær eru allar á minni tölvu sem er biluð í augnablikinu

Næsta á dagskrá: Stokkhólmur 15 október 2007

Posted by sigurveig in Ísland.
4 comments

HÆjó
Ætla að skella inn einu léttu hérna. Ég er semsagt ekki búinn að gera neitt núna síðustu 5 daga var bara að vinna því það var vetrarfrí í FB og alltaf vantar mér peningar hehehe.
Svo er stórt mál á dagskrá ég er að fara til Stokkhólms að hitta hann Emil minn og verð bara að segja að ég er að deyja úr spenningi enda sá hann síðast 1 september. Ég ætla mér að vera þarna úti í 11 daga og er það alveg passlegt.

Ég fer út 17 okt á miðvikudaginn en strax næsta dag þá ætlum við að skunda í smá siglingu til Tallinn í Eistlandi verðum í smá stund þar og erum komin til baka á laugardeginum. Svo má ekki gleyma að ég er að fara á Mues tónleika á sunnudaginn. Það er semsagt stíft prógramm framundan.

Heyrumst hress og kát
Kv. Helga skóla stelpa

p.s verð að bæta hérna inn að ég er koksins orðinn fullgildur meðlimur í Parlogis hehehe það er kominn mynd af mér á síðuna hehe og húna er massíf þessi hérna hehehehe alltaf gott að hafa skrítna mynd af sér á netinu

.

Óvissuferð 2 október 2007

Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.
2 comments

Halló halló halló. Já ég er hef nú ekki séð neitt af nöktu fólki síðan ég bloggaði síðast og er ég alveg sátt með það.

En síðasta föstudag var nú nokkuð um húlumhæ hjá mér. Það var ekki meyra né minna en eitt stykki óvissuferð hjá Parlogis.
Ég mætti hress og kát í vinnuna til að hjálpa fólkinu að klára daginn svo rútan þyrfti ekki að bíða eftir okkur. Þegar við vorum búinn að vinna fórum við í mötuneytið og fengum við þar bjór og samlokur það var mjög gott þar sem ég var að deyja úr hungri.

Rútan kom kl 5 og var ferðinni heitið á Eyrabakka. Það var voða fjör í rútunni allir syngjandi og trallandi með vín í hendi.
Þegar við komum á Eyrabakka var grenjandi rigning og frekar dimmt. En ég lét það ekki stoppa mig ég fór bara í gönguskóna, pollabuxurnar og góða úlpu og skellti mér út í rigninguna.
Við fórum í fullt af leikjum og var ég í appelsínugula liðinu sem var náttúrulega bara langbest. Við fórum í Axar kast og ég hitti ekki neitt, víkingurinn er ekki var ekki alveg í mér, enda var ég að drekka Foster minnir mig hehe. svo fórum við í stígvéla kast og við enduðum á drumbakasti og viti menn ég kastaði lengst af drumbakösturunum. Enda ekki furða við stelpurnar fengum lítinn trítil drumb til að kasta hehehe.

Eftir þetta vorum við vel út köstuð og frekar blaut í gegn. Þá fórum við inn í Rauða Húsið og fengum okkur meyra að drekka. Svo eftir smá tíma var hlaðborðið opnað og það var ótrúlega gott!!!!!!!

Í rútunni heim voru allir frekar skrautlegir. Ég fékk að finna mikið fyrir því þar sem ég var örugglega eina manneskjan sem var bara búinn að drekka 3 bjóra og fann ekkert á mér. Í rútunni dó fólk úr áfengis dauða. Einhver ældi vel og vandlega í poka sem betur fer og allir hinir voru reyndar í góðum gír. Þegar ég kom heim þá var ég alveg búinn á því stein sofnaði…….

Svo var svaka fjör þegar hún Þórunn Emilía kom í heimsókn til okkar. Við skemmtum okkur ótrúlega vel saman og erum við bestar í að syngja Afi minn og Amma mín og Höfuð herðar né og tær. Hlakka ekkert smá til í febrúar þegar hinn ormurinn kemur í heiminn.

Heyrumst seinna og ekki vera feiminn við að kvitta fyrir ykkur

Nakið fólk 24 september 2007

Posted by sigurveig in Uncategorized.
3 comments

Jæja þá er nakta fólkið aftur farið á stjá. Já ég skrapp út í búð áðan og það var bara nokkuð gott þar sem ég var frekar svöng. En þegar ég kem heim og er að labba upp stigann til að komast heim til mín lít ég aftur fyrir mig, veit ekki af hverju en ég gerði það samt. það sem við mér blasti var ekki falleg, þarna í íbúðinni á móti var 1 verulega nakinn kona og 1 stikki hálfnakinn kall.

Ég hló alveg ótrúlega mikið því þetta er svo fáránlegt. Ég fór inn til mín og fór inn í herbergið mitt því ég ætlaði í tölvuna. En nei nei ég var víst búinn að draga frá inni hjá mér áður en ég fór út og um leið og ég kem inn þá blasir þessi sjón aftur við mér. En þá er 1 önnur kona búinn að bætast í hópinn heheh. Ég get svo svarið það þetta fólk er verulega klikk. Allir bara í gúddí fíling inní eldhúsi alsberir að kela. Já þar sem ég hef ekki mikinn áhuga á að horfa á þetta dró ég fyrir allt sem hægt var að draga fyrir.

Ég held að ég þurfir að senda þessu fólki bréf og vinsamlega biðja þau um að kaupa sér gardínur í eldhúsið hjá sér. Ehhehe. Þetta var semsagt morguninn hjá mér.

En um helgina var alsherja tiltektar æði hérna heima. Ég tók til í báðum herbergjunum og stóð mig með prýði. Ég og mamma fórum meyra að segja í IKEA að skoða okkur um og þar fékk ég fullt af kössum til að hafa smá skipulag á draslinu mínu.

Réttir 16 september 2007

Posted by sigurveig in Ferðalög, Ísland.
3 comments

Jæja þá er maður búinn í réttunum og þar var ótrúlega gaman. Rollur og fólk útum allt.
Ég byrjaði á því að vakna kl 7 á föstudaginn og var kominn í breiðás um 9 mega fjör á leiðinni, Anna Björk, Jóhanna og vinkonur hennar fengu far hjá mér frá selfossi upp í sveit.

En réttirnar voru frábærar þarna mættu fullt af fólki og var alveg pakkað af rollum í smá tíma hhehe, ég sjálf náði 4 sem er alveg ágætt, var ekkert að massa mig í þessu hehehe. Enda voru þessar rollur alltaf að stanga mann í lærin. Er öll í marblettum eftir litlu gómsætu krúttin hehehe.

En svo eftir réttir var skundað í Breiðás og fengið sér ótrúlega góða réttarsúpu, hún er alltaf svo ótrúlega góð hjá ömmu að ég gat ekki hætt að borða hana heheh.
Þá var bara eitt eftir. Það var að skella sér á réttarball.
Ég fór í Árnes þar sem ballið var og við frænkurnar vorum strax komnar í fílinginn.
Það var ótrúlega gaman þarna, reyndar var ótrúlega mikið um slagsmál að ég var alveg að vera brjáluð, það voru alltaf 2 stelpur að slást þarna og skil ekki af hverju þeim var ekki hent út. En fyrir utan slagsmál var ég bara í mjög góðum fíling allt kvöldið.

Ég ætlaði að fara í skeiðaréttir og vaknaði ég kl 9 svo ógeðslega þunn að það var ekki sjens að ég væri að fara í réttir, enda var grenjandi rigning og ógeðslegt rok. Og þar sem ég var hjá frænkuminni í Árnesi komst ég ekki strax í Breiðás en þá var ekki annað í spilunum en að fara aftur að sofa.

Svo þegar ég var að fara heim seinna um kvöldið þá var bara snjókoma og læti á heiðinni hehehe
En þetta er komið nóg í bili bæjó spæjó

Nýjar Myndir eru komnar á síðuna þær eru þarna í Myndirnar Mínar :)